UTmessan, einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum, verður haldin í fjórða sinn dagana 7. og 8. febrúar í Hörpu. Tilgangur UTmessunnar er ekki síst til að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikill þessi grein er orðin hér á landi en þar mæta mörg helstu og stærstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins, sem og erlendir gestir, og taka þátt með einum eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna sér um hvað tölvuiðnaðurinn snýst. Hvernig vakta skal heilt þjóðfélag, ábyrgð Íslendinga á netinu, persónuleg notkun samfélagsmiðla eins og Facebook í vinnunni, Bitcoin og þrívíddarprentarar koma við sögu, ásamt fjölda áhugaverðra…
Author: Nörd Norðursins
Laugardaginn 1. febrúar verður hin árlega Japanshátíð haldin í tíunda sinn á Háskólatorgi Háskóla Íslands milli klukkan 13:00 og 17:00. Á hátíðinni verður meðal annars hægt að bragða á Sushi, kynnast japönskum þjóðsögum og bardagalistum, skoða manga teikningar, origami, japönsk leikföng og safngripi. Einnig verður boðið upp á japanska tónlist og dansa. Rúsínan í pylsuendanum er svo cosplay búningakeppnin sem verður haldin kl. 15:40 á aðalsviði hátíðarinnar. Ítarlegri upplýsingar um Japanshátíð 2014 er að finna á Facebook-síðu hátíðarinnar. Þess ber að geta að notast verður við #japanfestival2014 merkið á samfélagsmiðlum. Ókeypis inn og allir velkomnir! -BÞJ
Bardagar eru daglegt brauð í fjölspilunarleiknum Eve Online en kunnugir segja að ástandið síðustu daga sé einstakt hvað varðar fjölda þeirra sem taka þátt og kostnað (sem er metinn á yfir 100 þúsund dollara). Fyrir áhugasama bendum við á þennan og þennan þráð á Reddit og ítarlegum upplýsingum hér á EVE Community. -SLS
Við sögðum frá því um helgina að Gamestöðin verður með sérstaka PS4 kvöldopnun þriðjudaginn 28 janúar. Í nýjasta Elko blaðinu (27. janúar – 2. febrúar) kemur fram að Elko ætlar einnig að vera með PS4 kvöldopnun í Elko Lindum sama kvöld, kl. 21:00. Hægt er að trygga sér eintak í verslunum Elko eða með því að forpanta á Elko.is fyrir kl. 19:00 þann dag. Elko selur tölvuna á 79.995 kr, sem er í takt við almennt verð á PS4 í dag. -BÞJ
Nú styttist í að PlayStation 4 fari í almenna sölu hér á landi. Að því tilefni fékk ég Ágúst Guðbjartsson, framkvæmdastjóra Skífunnar og Gamestöðvarinnar, í stutt spjall. Gamestöðin er eina verslunin á Íslandi sem sérhæfir sig sölu tölvuleikja og leikjatölva hér á landi. Fyrir stuttu opnaði ný verslun í Smáralind þar sem viðskiptavinir geta fengið sér sæti, slappað af og spilað tölvuleiki í sérstöku leikjaherbergi sem hefur hlotið góðar móttökur að sögn Ágústs. Í Bandaríkjunum og Evrópu er nokkuð hörð samkeppni milli Xbox One og PlayStation 4 leikjatölvanna frá Microsoft og Sony. Þó svo að Xbox One sé dýrari kosturinn…
Eins og við sögðum frá í fyrra kemur nýjasta PlayStation leikjatölvan, PlayStation 4, til landsins miðvikudaginn 29. janúar næstkomandi. Reyndar voru nokkrir heppnir sem nældu sér í PS4 tölvur í desember, en tölvan fer aftur á móti í almenna sölu hér á landi 29. janúar. Í desember voru PlayStation 4 tölvurnar seldar á verðbilinu 85.000 til 90.000 kr. (sem er skuggalega nálægt okkar verðspá!). Þær gleðifréttir voru að berast að vegna hagstæðs gengis íslensku krónunnar hefur verið ákveðið að lækka verðið. Almennt verð á PS4 er nú komið niður í 79.999 kr. og verður hægt að kaupa tölvuna í Elko,…
Fylgstu með hvernig BYZE nær að gabba Steve á epískan hátt upp úr skónum í DayZ. Endirinn er alltof góður!
Formlega kemur PlayStation®4 út á Íslandi miðvikudaginn 29. janúar en Skífan og Gamestöðin taka forskot á sæluna með kvöldopnun í verslununum í Kringlunni og Smáralind. Fyrstu eintökin af PlayStation®4 verða afhent kl. 21:00 á þriðjudagskvöld en opið verður til kl. 23:00. Gríðarleg spenna hefur verið fyrir PS4 en heil sjö ár eru frá því að PlayStation®3 kom út. Um algjörlega byltingu er að ræða og er upplifunin af því að spila henni henni engu lík. PS4 hefur þegar selst í yfir 4 milljónum eintaka á heimsvísu og hafa viðtökurnar verið afar góðar. „Við hjá Gamestöðinni erum virkilega spennt að geta…
Bíó Paradís opnar sérstaka Bíó Paradís VOD rás á Leigunni hjá Vodafone þriðjudaginn 28. janúar. Boðið verður upp á dagskrá áhugaverðra kvikmynda frá öllum heimshornum sem koma til með að auka framboð kvikmynda á íslenskum leigumarkaði. Þetta er í fyrst skiptið sem Bíó Paradís fer þessa leið með það að leiðarljósi að þjóna betur kvikmyndaunnendum á landsbyggðinni og þeim sem heima sitja. 5 myndir verða í boði frá 28. janúar en fleiri myndir munu bætast við á næstu vikum. „Þetta er stórkostleg nýung í okkar starfi. Það hefur lengi verið okkar draumur að bjóða upp á kvikmyndir á öðrum vettvangi,…
Eins og margir vita kom leikurinn Legend of Zelda: A Link Between Worlds út fyrir stuttu á Nintendo vélarnar. Á meðan unnið er að gagnrýna leiksins þá er upplagt að renna aðeins yfir tímaröðina í þessari leikjaseríu og hvernig hver og einn leikur tengist. Varúð! Þessi grein er full af spillum. Sá leikur sem markar upphaf sögunnar er Skyward Sword. Í þeim leik verður Hyrule til og Link býr til Master Sword, sagan segir einnig frá stríðinu á milli Demise og Hylia. Í enda leiksins ríkir Zelda yfir konungdæmi Hyrule. Næstur í röðinni er Minish Cap en þar er Vaati…