Fréttir1

Birt þann 4. júlí, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Evrópuþingið fellir ACTA

Evrópuþingið hefur fellt hið umdeilda ACTA samkomulag með afgerandi hætti með 478 atkvæðum gegn 39 en 165 greiddu ekki atkvæði. Gagnrýnendur ACTA hafa fyrst og fremst bent á að samkomulagið ver höfundarrétt á kostnað málfrelsis og auk þess sé þetta ekki góð leið til að tækla sjóræningja á netinu.

 

 

Stór hluti þeirra sem eru á móti ACTA báru skilti við atkvæðagreiðsluna þar sem stóð stórum stöfum; „Hello democracy. Goodbye ACTA“.

Evrópuþingsmaðurinn David Martin segir að dagurinn í dag (4. júlí) sé sögulegur dagur í evrópskri pólitík þar sem niðurstaða Evrópuþingsins þýði að ekkert af 22 löndum Evrópusambandsins geti gert ACTA samkomulagið að sjálfstæðum lögum í sínu landi.

On July 4, Europe celebrates a day of independence from American special interests. Today, we stood up for our most basic rights against corporate giants, and won, – Rick Falkvinge, the founder of the Swedish Pirate Party

Þrátt fyrir að ACTA samkomulagið hafi verið fellt í Evrópuþinginu kemur þó enn til greina að önnur lönd utan Evrópu, t.d. Bandaríkin, Ástralía, Kanada, Japan, Marokkó, Nýja Sjáland, Síngapor og Suður-Kóreu virði samkomulagið. Frá því að ACTA var sett fram árið 2007 hafa ofangreind lönd stutt við samkomulagið, en um leið og upplýsingar láku til almennings fóru víðtæk mótmæli af stað í nokkrum löndum.

Heimild: Evrópuþingið
Mynd: Flickr-síða Evrópuþingsins

BÞJ

Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑