Birt þann 5. maí, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Spurt og spilað: Hilmar Veigar Pétursson
Í liðnum Spurt og spilað forvitnast Nörd Norðursins um tölvuleikjaspilun þjóðþekktra einstaklinga með stuttum spurningum. Fyrsti viðmælandi okkar er Hilmar Veigar Pétursson.
Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdastjóri stærsta leikjafyrirtækis á Íslandi, CCP, er fyrsti viðmælandi okkar. Hilmar hefur starfað sem framkvæmdastjóri CCP frá árinu 2004, en fyrirtækið er hvað þekktast fyrir fjölspilunarleikinn EVE Online sem hefur verið í gangi frá árinu 2003, og fyrstu-persónu fjölspilunarskotleikinn DUST 514 sem er væntanlegur á PlayStation 3 leikjatölvuna síðar á árinu.
Hilmar er tölvunarfræðingur að mennt og með B. Sc frá Háskóla Íslands og starfaði meðal annars hjá OZ og SmartVR áður en hann hóf feril sinn hjá CCP.
Hverskonar tölvuleiki spilaru helst?
- RTS og simulation.
Uppáhalds tölvuleikur?
- StarCraft I
Fyrsta leikjatölvan?
- Sinclair Spectrum
Uppáhalds leikjatölvan?
- PlayStation 3
Eitthvað að lokum?
- Allir að spila DUST 514 í haust.