Upprunalega kom Assassin’s Creed IV: Black Flag út árið 2013 fyrir PlayStation 3, Xbox 360, PC og Nintendo Wii U. Síðar fékk leikurinn uppfærða útgáfu á PlayStation 4 og Xbox One. Leikurinn seldist mjög vel og aðein Assassin’s Creed: Valhalla hefur selst í fleiri eintökum en hann.
Það voru búnir að vera þráðlátir orðrómar síðustu árin að franski leikjaútgefandinn Ubisoft stefndi á að endurgera AC Black Flag og það var loks staðfest fyrr á þessu ári. Assassin‘s Creed: Black Flag – Resynced er endurgerð frá grunni af upprunalega leiknum keyrandi á nýjustu útgáfunni af Anvil grafíkvélinni.
Ubisoft Singapore leiddi vinnuna við þessa endurgerð, og síðan ótal hliðarstúdíó Ubisoft um allan heim. Við reynum að fyrirgefa þeim fyrir Skull and Bones sjóræningjaleikinn sem spratt einmitt upp úr vinnunni við AC IV: Black Flag og var um tíu ár í vinnslu áður að hann kom út loksins í febrúar 2024 við dræmar undirtektir gagnrýnenda og leikjaspilara.
Hvað er nýtt?
- Leikurinn er með um sex tíma af nýju söguefni til að spila í gegnum og fyllir það upp í eyður á upprunalegu sögu leiksins.
- Það eru „rifts“ sem er hægt að kanna sem tengja nútímasögu seríunnar við leikinn, ásamt að vera „hvað ef“ augnablik úr sögu leiksins.
- Þrjár nýjar persónur til að fá til liðs við áhöfn þína: Lucy, Padre og Deadman og verkefni tengd þeim
- Ný átta parta viðbótar saga sem byrjar eftir að saga leiksins endar.
- Nýjar eyjur til að kanna, ásamt verkefnum og nýjum raddsetningum leikara.
- Hægt er að finna hluti til að skreyta húsið þitt á Great Inagua eyjunni ásamt því að finna málverk til að skreyta veggina þess með.
- Ný gæludýr til að finna og vera með um borð í Jackdaw sjóræningjaskipi þínu.
- Skipið er með ný og betrumbætt vopn.
- Bardagakerfi leiksins hefur verið endurbætt, nýir óvinir, loksins hægt að krjúpa hvenær sem þú vilt laumast um, reipisvopnið er kynnt miklu fyrr til leiks en var áður.
- Tíu ný „sea shanties“ lög búin til sérstaklega fyrir Resynced.
- Erfiðleikastillingar og aðgengisstillingar til að auðvelda sem flestum að spila leikinn.
Þetta er bara hluti af því sem er er nýtt í leiknum fyrir utan auðvitað stór endurbætt útlit og grafík leiksins. Maður áttar sig betur á hve mikið hefur breyst á síðustu þrettán árum í leikja bransanum við að ræsa upp gömlu PS4 útgáfu leiksins og hlaupa um heiminn í smá stund.

Saga leiksins
Líkt og í eldri leikjum seríunnar verja leikmenn mestum hluta spilatímans inni í Animus-tækinu sem Musterisriddararnir (Templars) bjuggu til, þar sem farið er í gegnum minningar Desmond Miles, aðalsöguhetju síðustu fimm aðal Assassin’s Creed leikjanna. Þessi partur leiksins er ekki sýndur á sömu vegu og upprunalega, nær allir framtíðar- og Animus og Abstergo hlutar leiksins hafa verið strípaðir í burtu að mestu.
Kjarni sögunnar er að Musterisriddararnir eru að leita að dularfullum stað sem kallast „Observatory“ og þurfa að fá aðgang að minningum Edward Kenway, sem er einn af forfeðrum Desmonds.
Edward hefur skilið eiginkonu sína eftir í Englandi í leit að frægð og auðæfum í Karíbahafinu og ætlar sér að verja þar í mesta lagi tveimur árum. Eins og oft vill verða í góðum sögum fara hlutirnir þó ekki alveg samkvæmt áætlun.
Eftir harkaleg átök við annað skip stranda Edward og launmorðingi saman á eyðieyju. Eftir dauða hins dularfulla launmorðingja tekur Edward upp auðkenni hans og flækist inn í hina langvarandi baráttu milli Musterisriddara og Launmorðingja.
AC4 var fyrsti leikurinn í seríunni þar sem leikmaðurinn stóð að mestu leyti utan við aðalátökin og hugsaði fyrst og fremst um eigin hag. Edward er í upphafi hrokafullur maður sem hefur aðeins áhuga á gullinu sem hann getur rænt. Framvinda heimssögunnar skipta hann því litlu máli. Eftir því sem sagan þróast og hann kynntist mörgum áhugaverðustu persónum sjóræningjatímans breytist hann þó smám saman til hins betra..

Skemmtilegasti hluti leiksins er auðvitað möguleikinn að verða sjóræningi á Karíbahafinu og dreifa skelfingu meðal grunlausra enskra og spænskra skipaflota.
Það eru þrjár stórar borgir sem leikmenn heimsækja á meðan á leiknum stendur. Havana á Kúbu, sem Spánverjar stjórna, Kingston á Jamaíku sem Bretar ráða yfir, og svo Nassau á Bahamaeyjum sem í upphafi leiks þjónar sem griðastaður sjóræningja.
Ein af kvörtununum varðandi Assassin’s Creed III var skortur á lóðréttum þáttum í spiluninni sem eldri leikirnir buðu upp á. Það var skiljanlegt þar sem leikurinn hafði fært sig yfir í „Nýja heiminn“ þar sem ekki voru mörg háhýsi eða háar byggingar á þeim tíma og sama á við um Black Flag. Þetta er alls ekki stór galli, en margir leikmenn munu líklega fagna því þegar serían færist aftur til eldri staðsetninga með fjölbreyttari byggingastíl og meiri hæðarmun.
Einn stærsti kostur leiksins — og minn persónulegi uppáhalds hluti — eru skipabardagarnir. Í Assassin’s Creed III voru aðeins nokkur verkefni sem innihéldu sjóorrustur á opnu hafi og maður vildi alltaf meira. Í Black Flag fá leikmenn hins vegar skipabardaga í ríkum mæli.
Allt frá litlum byssu bátum til meðalstórra herskipa og stórra goðsagnakenndra skipa með mörgum byssu þilförum er alltaf annað skip við sjóndeildarhringinn sem hægt er að ráðast á og ræna.
Jackdaw er vel vopnað skip til að takast á við óvini. Þú hefur fallbyssur á hliðunum fyrir aðalbardagana, keðjuskot fremst til að lama skip og eyðileggja segl þeirra, steypuhræru (mortar) sem getur valdið miklum skaða úr fjarlægð, eldföt sem hægt er að kasta fyrir aftan skipið til að hægja á eftirförum, og snúnar hliðabyssur (swivel guns) sem hjálpa við að fækka óvinum þegar farið er um borð í skip.
Ef eftirlýsingarstig þitt verður nægilega hátt eru sérstakir sjóræningjaveiðar sendir á eftir þér. Þá geturðu annað hvort staðið og barist eða reynt að flýja og fela þig á milli eyjanna — eða jafnvel mútað embættismanni til að fjarlægja verðlaunin sem sett hafa verið á höfuð þitt.
Þegar þú tekur yfir skip hefurðu einnig möguleika á að lækka eftirlýsingarstigið þitt og gera við eigið skip með hlutum úr því skipi sem þú sigraðir.

AC IV: Black Flag var að mínu mati skemmtilegasti leikurinn í seríunni til þessa, og að mestu er þessi nýja útgáfa það áfram. Sagan er mjög góð, þó hún nái kannski ekki alveg sömu hæðum og Assassin’s Creed II. Síðari leikir eins og AC: Origins o AC: Odyssey voru með persónulegri hefndarsögu sem ég held ennþá meira upp á en þessa.
Það sem Ubisoft gerir einstaklega vel er að ná tímabilinu, þemanu og andrúmslofti gullaldar sjóræningjanna og hinnar stuttu en glæsilegu sögu þeirra áður en þeir voru að lokum kramdir undir valdi evrópsku nýlenduveldanna.
Spilunin er fjölbreytt og efnisrík. Það er alltaf eitthvað nýtt að gera eða uppgötva og maður getur skemmt sér endalaust við að sigla um Karíbahafið og sjá hvað bíður handan sjóndeildarhringsins.

Kostir og gallar
Gallar leiksins þá og aftur núna eru margir þeir sömu. Verkefni leiksins eiga til að vera of endurtekin, aðallega hliðarverkefni leiksins. Bardagakerfið virkar ennþá pínu stíft og snýst þetta núna meira um að verjast óvinunum og afgreiða þá þegar vörn þeirra hrynur. Þetta er ekki jafn slæmt og í AC 2 þegar óvinirnir röðuðu sér upp og réðust á þig einn í einu og þú endaðir með líkhrúgu í kringum þig eftir smá tíma.
Ég sakna ekki fjölspilunarhluta leiksins þó að hann hafi verið vel heppnaður á sínum tíma, en að fá ekki með í pakkann AC: Freedom Cry sem hélt áfram sögu Adéwalé úr leiknum var svekkjandi. Sú saga var mjög góð og kannaði ljótan hluta sögunnar og þrælahaldsins á milli Afríku og Karabíska hafsins.
Tæknilegar hliðar
Eitt sem verður ekki tekið af leiknum er að hann lítur gullfallega út. Ég spilaði í gegnum hann á PlayStation 5 Pro vélinni minni og keyrði leikurinn mjög vel í gegnum þá hátt í 50 tíma sem ég sökkti í þessa nýju útgáfu
Eins og er oft með nýrri leiki þá er hægt að velja á milli að spila leikinn í 30, 40 (þarf skjá eða sjónvarp sem styður 120hz) eða 60 ramma á sek. Það er auðvitað mismunur í gæðum á leiknum eftir hvað er valið. Nýju veðurkerfin og hvernig sjórinn hreyfist og öldurnar skella á ströndinni er einn af uppáhalds hlutum mínum við þessa nýju útgáfu Black Flag.


Ég hefði viljað sjá Ubisoft endurgera fyrsta Assassin‘s Creed leikinn frá árinu 2007. Sá leikur er orðinn vel gamall og hefði verið gaman að sjá hann endurgerðan frá grunni og fá mögulega nýtt efni og betrumbætur á spilun hans, eitthvað sem sárlega vantar og væri frábær leið að kynna fólk fyrir þessari seríu. Það er talað um að Ubisoft séu að vinna að öðrum endurgerðum af eldri leikjum sínum, bæði í AC seríunni og öðrum sem þeir eiga, svo það er ekki öll von úti enn um AC 1 endurgerð.
Lokaorð
Ég hefði viljað sjá Ubisoft endurgera fyrsta Assassin‘s Creed leikinn frá árinu 2007. Sá leikur er orðinn vel gamall og hefði verið gaman að sjá hann endurgerðan frá grunni og fá mögulega nýtt efni og betrumbætur á spilun hans, eitthvað sem sárlega vantar og væri frábær leið að kynna fólk fyrir þessari seríu. Það er talað um að Ubisoft séu að vinna að öðrum endurgerðum af eldri leikjum sínum, bæði í AC seríunni og öðrum sem þeir eiga, svo það er ekki öll von úti enn um AC 1 endurgerð.
Það var mjög gaman að spila í gegnum Assassin‘s Creed: Black Flag – Resynced á ný og það tók ekki langan tíma að detta í sjóræningjagírinn á ný. Skip þeirra spænsku, hollensku og ensku voru snögg að byrja að hata mig og Jackdaw skipið mitt eftir smá tíma. Það er nóg af efni í leiknum þrátt fyrir að nútímahlutarnir ásamt fjölspilun upprunalega leiksins eru ekki til staðar, þó er missir af niðurhalsefninu Freedom Cry sem hefði gert þennan pakka bestu heildarútgáfu leiksins til þessa.
Sumir hlutar Black Flag eldast betur en aðrir, ég er líklega einn af fáum aðdáendum seríunnar sem fagnaði því þegar að serían fékk spark í rassinn með útgáfu AC: Origins og bardaga, parkour og stærð heimsins var breytt.
Gamla bardagakerfi AC leikjanna var orðið þreytt að mínu mati, það er hægt að rökræða um RPG væðingu síðustu leikja og minnkun á að laumast um, það er eitthvað sem má vel bæta úr í næstu leikjum. Það var skiljanlegt fyrir um tuttugu árum að persóna manns gat ekki klifrað hvar sem er, en árið 2026 þá finnst mér að það ætti vera hægt að gera betur þar. AC: Shadows em við fjölluðum um í fyrra var að mínu mati skref í rétta átt að rétta seríuna aðeins við, ég hefði alveg geta lifað án RPG kerfa leiksins, ég aftur á móti hafði mjög gaman af spila sem Naoe og minnti hún mikið á að spila sem Assassin launmorðingi eins og í eldri leikjum. Vonandi mun Ubisoft ná að rétta seríuna af og finna blöndu sem hentar bæði eldri og nýrri spilurum seríunnar. Ég er búin að vera hérna frá byrjun og bíð spenntur að sjá hvað er næst í boði.
Assassin‘s Creed: Black Flag – Resynced kemur út þann 9. Júlí á PC, PlayStation 5 og Xbox Series X/S leikjavélarnar.
Eintak í boði útgefanda.
Karabíska hafið kallar á ný
Það góða
- Stór og spennandi heimur að kanna
- Uppfærð saga með nýjum persónum
- Karabíska hafið hefur aldrei verið jafn fallegt að sjá
- Eltingar- og hlerunar verkefnin endurhönnuð
- Neðansjávarhlutar leiksins stórbættir og stækkaðir
Það slæma
- Endurtekin verkefni
- Ekkert Freedom Cry DLC
- Bardagakerfið er þreytt
