Sony hefur tilkynnt að fyrirtækið muni hætta framleiðslu á áþreifanlegu diskum fyrir PlayStation leikjavélar sínar, frá og með janúar 2028. Í nýrri færslu á PlayStation blogginum þá sagði fyrirtækið að það hefði tekið þessa ákvörðun byggða á minnkandi sölu tölvuleikja á diskum á móti stafrænum útgáfum þeirra. Áfram verður í boði að kaupa tölvuleiki í gegnum PlayStation búðina og verslunum, líklega þó bara í formi kóða í boxi eða korti með kóða til að slá inn í búðinni og sækja leikinn.
Fyrirtækið sagði að þessar breytingar myndu ekki hafa nein áhrif á þá tölvuleiki sem hafa nú verið gefnir út og koma út á næstunni. „Þessi breyting gerir okkur kleift að snúa okkur betur að því það sem viðskiptavinir okkar sækjast eftir,“ sagði Sony.
Þessi breyting á leikja bransanum er eitthvað sem er búin að liggja í loftinu síðustu árin og hafa bæði Sony og Microsoft gefið út leikjavélar sínar án diska drift ásamt að bjóða upp á útgáfur með þeim. Mikið hefur verið rætt um að PlayStation 6 og næsta Xbox vél gætu komið án diska drifa algerlega og notast bara við stafrænar útgáfur leikja á þeim.
Þessar breytingar koma stuttu eftir að Rockstar Games staðfestu að Grand Theft Auto VI sem kemur út í nóvember á þessu ári verður bara í boði stafrænt. Sem sagt á stafrænum búðum Sony og Microsoft og útgáfan sem seld verður út í búð, verður bara kóða í hulstrinu til að sækja leikinn í gegnum internetið.
Ofan á þessar fréttir þá staðfesti Sony einnig að PlayStation búðin fyrir PlayStation 3 og PlayStation Vita myndi loka í vissum hlutum heimsins í haust og algerlega á heimsvísu sumarið 2027.
Hvaða áhrif þetta mun hafa fyrir neytendur á eftir að koma í ljós, það verður takmarkaðra að kaupa tölvuleiki og notaði markaðurinn fyrir nýja tölvuleiki eftir 2028 verður talsvert minni ef ekki búin að þurrkast upp að mestu leyti. Samkeppni og verslanir að keppast um að vera með besta verðið á leikjum verður mjög takmarkað og möguleikar neytenda að finna besta verðið og skiptast á eða lána tölvuleiki verða nær ómögulegt eftir þetta.
Það verður líklega en eitthvað um að smærri fyrirtæki skoði að gefa út leiki, en það verður líklega bæði erfiðara og dýrara eftir þessar breytingar. Varðveisla tölvuleikja mun reynast erfiðari eftir þessar breytingar og má búast við einhverjir notendur haldi sig við eldri kynslóðir leikjavéla í einhvern tíma eða snúi sér annað við þessar breytingar.
Hvað finnst ykkur um þetta útspil Sony? Er þetta bara heimurinn í dag? Viljið þið eiga áþreifanleg eintök af leikum, eða er nóg að kaupa „leigja“ þá til langtíma stafrænt?
Heimild: PlayStation Bloggið
