Nexus, nördaverslun Íslendinga, heldur Ókeypis myndasögudaginn (Free Comic Book Day) hátíðlegan í dag, laugardaginn 2. maí. Verslunin í Glæsibæ opnar kl. 11:30 og ætti enginn gestur að fara tómhentur heim. Á boðstólnum í ár verður úrval blaða frá helstu útgefendum í Bandaríkjunum auk íslenskrar fríblaða frá Ókeipiss og Íslenska myndasögufélaginu (sem eru við hæfi 12 ára og eldri).
Búast má við margmenni og hefur Nexus leyst úr því með því að afhenda öllum sem mæta númerað armband. Gestum er svo hleypt inn eftir númerum og er því hægt að skoða vörur í versluninni á meðan beðið er, í stað þess að vera fastur í röð. Á Facebook-síðu viðburðarins kemur fram að mesta úrvalið er í byrjun dags og því um að gera að mæta tímanlega.
Gleðilegan myndasögudag og sjáumst í Glæsibæ!
