Bardagaleikurinn Starkheim Tournament varð aðgengilegur í snemmbúnri útgáfu (early access) á Steam 24. apríl síðastliðinn. Leikinn var meðal annars hægt að prófa á UTmessunni 2026 og Icelandic Game Fest 2025. Starkheim Tournament er fyrsti leikurinn frá Project MOX sem sér um þróun og útgáfu leiksins. Project MOX er pólskt-íslenskt samvinnuverkefni þeirra Piotr Klich og Egils Hanssonar og sér Piotr um að forrita leikinn og Egill að mestu um grafík og útlit leiksins. Fleiri íslensk nöfn er að finna í kreditlistanum: Jóhannes Már Ragnarsson kemur að grafík og myndlífgun (animation) og Bjarni Freyr Björgvinsson kemur að tónlistarsmíði leiksins.
Í Starkheim Tournament berjast spilarar sín á milli í bardaga í tvívíðu pixlaumhverfi, sem gefur leiknum skemmtilegan retró-blæ. Hægt er að velja á milli fjögurra mismunandi karaktera og þriggja mismunandi borða í núverandi útgáfu leiksins. Project MOX stefnir á almenna útgáfu (1.0) af leiknum árið 2027 sem mun þá innihalda 13-14 mimsunandi karaktera og 9-10 borð.
