Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Menning»Viðburðir»Samtal um skapandi ferli tölvuleikja 8. apríl í CCP Games
    Viðburðir

    Samtal um skapandi ferli tölvuleikja 8. apríl í CCP Games

    Höf. Bjarki Þór Jónsson7. apríl 2026Uppfært:8. apríl 2026Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Miðvikudaginn 8. apríl kl. 10:15 býður Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) í samstarfi við CCP Games upp á samtal um skapandi ferli tölvuleikja. Kanónur úr íslenska leikjabransanum verða með erindi þar sem fjallað verður meðal annars um listræna nálgun á tölvuleikjum og um tengsl tölvuleikja við listir og menningu.

    Nauðsynlegt er að skrá sig til að mæta í húsakynna CCP Games í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Erindum verður einnig streymt en ekki umræðum sem fram fara í kjölfarið meðal fundargesta. Athugið að erindin fara fram á ensku.

    Á heimasíðu RSSG er að finna yfirlit yfir dagskrá og þau erindi sem flutt verða:

    • Steingerður Lóa Gunnarsdóttir er sjálfstætt starfandi leikjahönnuður og stundakennari við Háskólann í Reykjavík. Í erindinu sínu mun Lóa m.a. ræða að hvaða leyti megi kalla tölvuleikjagerð list.
    • Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri, listrænn stjórnandi og meðstofnandi Myrkur Games, leiðir þar þróun leikja og starfsemi fyrirtækisins. Halldór mun m.a. segja okkur frá því hvernig Myrkur hefur nýtt leiklistina og hæfileika leikara í tölvuleikjagerð.
    • María Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Parity Games, er með yfir 20 ára reynslu í tölvuleikjageiranum og mun m.a. segja okkur frá því samstarfi sem Parity hefur átt við söfn og hvað liggur að baki samstarfinu.
    • Jonatan Van Hove er sjálfstætt starfandi leikjahönnuður sem hefur starfað í bransanum frá árinu 2010. Í erindi sínu mun Joon m.a. veita gestum innsýn í hvernig það er að vera sjálfstætt starfandi í þessum bransa.

    Mynd: RSSG – Skapandi ferli tölvuleikja

    fyrirlestur Halldór Snær Kristjánsson igi Jonatan Van Hove leiklist list María Guðmundsdóttir Myrkur Games Parity Games sjálfstætt starfandi söfn Steingerður Lóa Gunnarsdóttir tölvuleikjaiðnaðurinn
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaLeikjavarpið #69 – Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia
    Næsta færsla Pixelwear – samfélagsdrifin vefverslun fyrir íslenskt tölvuleikja- og nördasamfélög
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026

    CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl

    21. apríl 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026
    Leikjarýni
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.
    • Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí
    • Ókeypis myndasögudagurinn í dag!
    • Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam
    • Walk of Life kominn út!
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.