Birt þann 11. október, 2021 | Höfundur: Nörd Norðursins
Leikjavarpið #30 – Far Cry 6, FIFA 22 og Battlefield 2042 Beta
Tölvuleikjanördarnir Bjarki Þór, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Páll fara um víðan völl í þrítugasta þætti Leikjavarpsins. Steinar segir frá Alan Wake Remastered sem var gefinn út í byrjun mánaðar, Sveinn gagnrýnir Far Cry 6 sem hann kláraði nýlega en Sveinn hefur spilað allar Far Cry leikina og þekkir seríuna því mjög vel, einnig má benda á að hægt er að lesa leikjarýnina hér. Bjarki skellir sér í takkaskóna og tæklar FIFA 22 og Hypermotion-tæknina sem EA notaði við gerð leiksins, Daníel Páll heldur áfram með Leikjaklúbbinn og kynnir næsta leik sem klúbburinn ætlar að spila. Allt þetta og margt margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Efni þáttar:
- Hvað er verið að spila?
- Alan Wake Remastered
- Windows 11
- Verðið á Nintendo Switch OLED á Íslandi
- Battlefield 2042 Beta
- Auka SSD diskar fyrir PS5
- Far Cry 6
- FIFA 22
- Leikjaklúbburinn
- GTA Definitive Edition safnið
- Streymi planað: Back 4 Blood
Er þú með hugmynd að umræðuefni fyrir næsta þátt? Heyrðu þá í okkur á Facebook eða Instagram!
Mynd: Haninn Chicharrón úr Far Cry 6 og Wikimedia (Aaron Rotenberg)