Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»PlayStation 5 komin í forsölu á Íslandi! Verð og útgáfudagur staðfestur
    Fréttir

    PlayStation 5 komin í forsölu á Íslandi! Verð og útgáfudagur staðfestur

    Höf. Bjarki Þór Jónsson17. september 2020Uppfært:17. september 2020Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Created with GIMP
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Gamestöðin, Elko, Tölvutek og Vodafone hafa opnað fyrir forpantanir á næstu kynslóð leikjatölvu frá Sony; PlayStation 5. Tvær útgáfur eru í boði og er algengt verð fyrir diskalausu útgáfuna hér á landi er 79.999 kr en fyrir diskaútgáfuna 99.999 kr. (ekki langt frá giskinu okkar í Leikjavarpinu!) Svipað verð er milli allra áðurnefnda verslana en þegar þessi frétt er skrifuð er Gamestöðin að bjóða hagstæðasta verðið fyrir diskaútgáfuna þar sem hún kostar 96.999 kr. í forsölu. Aðeins munar örfáum krónum milli verslana á diskalausu útgáfunni.

    Sony hélt kynningu í gær þar sem verð og útgáfudagur á PlayStation 5 var kynnt ásamt leikjaúrvali. Tölvan kostar mismikið eftir heimsálfum líkt og sést á myndinni hér fyrir neðan og spilar gengi krónunnar inní þetta verð fyrir íslenskar verslanir og kaupendur.

    Á núverandi gengi hér á landi myndi ódýrari útgáfan kosta á bilinu 55-70.000 kr. án gjalda og álags en dýrari útgáfan myndi kosta á bilinu 70-90.000.

    Útgáfudagur hefur einnig verið staðfestur. Tölvan verður gefin út þann 12. nóvember í Bandaríkjunum, Mexíkó, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Suður-Kóreu. Á öðrum stöðum kemur tölvan viku síðar í verslanir, eða þann 19. nóvember. Samkvæmt heimasíðu Elko er gert ráð fyrir að fyrstu PS5 tölvurnar hér á landi verði komnar í lok nóvember.

    Tekið af Elko.is

    Á sömu PlayStation 5 kynningu, sem hægt er að horfa á í heild sinni á YouTube, voru tölvuleikirnir, Final Fantasy XVI, Spider-Man: Miles Morales, Hogwarts Legacy, Call of Duty: Black Ops Cold War, Resident Evil Village (VIII), Five Nights at Freddy’s: Security Breach, Deathloop, Demon’s Souls, nýr God of War sem væntanlegur er í verslanir 2021.

    Ætlar þú að forpanta PlayStation 5?

    • Já, stafrænu útgáfuna! (51%, 59 Votes)
    • Já, diskaútgáfuna! (37%, 42 Votes)
    • Nei (12%, 14 Votes)

    Total Voters: 115

    Loading ...
    elko forsala gamestöðin playstation PlayStation 5 PS5 sony Tölvutek Vodafone
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaHvað mun nýja Xbox tölvan kosta á Íslandi?
    Næsta færsla Leikjavarpið #15 – Næsta kynslóð leikjatölva, páfaát og geislasverð
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026

    Elko með GTA VI kvöldviðburð 12. nóvember

    31. október 2026
    8.5

    Control Resonant brýtur lögmál raunveruleikans

    29. október 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Control Resonant brýtur lögmál raunveruleikans

    29. október 2026
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026
    8

    AC Black Flag Resynced – Svarti fáninn rís á ný

    8. júlí 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
    • Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko
    • GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember
    • Elder Scrolls 6 fær nafn
    • Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.