Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Tölvuleikjaspilarar safna fyrir Kvennaathvarfið
    Fréttir

    Tölvuleikjaspilarar safna fyrir Kvennaathvarfið

    Höf. Bjarki Þór Jónsson16. desember 2018Uppfært:16. desember 2018Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Stjórnendur hópsins Tölvuleikir – Spjall fyrir alla á Facebook hafa hleypt af stað söfnun til styrktar Kvennaathvarfsins. Söfnunin hófst fyrir um viku síðan og lýkur á miðnætti sunnudaginn 16. desember mánudaginn 17. desember. Stjórnendahópur Tölvuleikir – Spjall fyrir alla höfðu samband við Kvennaathvarfið og fengu upplýsingar um að yfir 100 börn dvelja hjá athvarfinu ár hvert og skortur sé á afþreyingu fyrir þessi börn. Í framhaldinu var ákveðið að safna fyrir leikjatölvum og tölvuleikjum til að gefa Kvennaathvarfinu.

    Upp eru strax komin plön um að gera þetta að árlegum viðburði og stofna jafnvel samtök í kringum þetta í anda Child’s Play.

    Viðbrögðin hafa verið mjög góð, bæði frá einstaklingum og fyrirtækjum, að sögn Brynjólfs Erlingssonar, stofnanda Facebook-hópsins. „Við fengum þær upplýsingar að það vantar afþreyingu fyrir þessa krakka og ákváðum því að það væri sniðugast að kaupa Nintendo Switch. Ástæðan væri gott leikjaúrval af leikjum sem eldast vel, létt að búa til nýa notendur á vélinni og svo þarf ekki alltaf sjónvarp. Eins og staðan er núna þá erum við búin að sprengja öll „stretch goal“ fyrir söfnunina og allt lítur út fyrir að við náum að gefa tvær Nintendo Switch með fullt af aukahlutum og um tíu leikjum, Super Nintendo mini og 43″ sjónvarp ásamt gjafabréfi til að kaupa meira. Þetta er langt umfram væntingar og vil ég sérstaklega þakka Raw Fury, CCP og Elko ásamt öllum einstaklingum sem hafa verið með. Upp eru strax komin plön um að gera þetta að árlegum viðburði og stofna jafnvel samtök í kringum þetta í anda Child’s Play.“


    Tengt efni: Stofnaði nýjan tölvuleikjahóp – Blöskrar umræðan í tölvuleikjanetsamfélögum á Íslandi


    Íslendingar sem starfa innan tölvuleikjageirans hafa meðal annars styrkt fjáröflunina með gjafakóðum í happdrætti, en allir sem styrkja málefnið um 1.000 krónur eða meira fara sjálfkrafa í happdrættispottinn. Gefnir verða stafrænir gjafakóðar sem gilda fyrir leikina Mutant Year Zero: Road to Eden, Kingdom: Two Crowns, Bad North, Battlefield V, Sumer, Out of the Loop og Triple Agent.

    Við hjá Nörd Norðursins hvetjum íslenska tölvuleikjaspilarar nær og fjær til að láta gott af sér leiða og styrkja gott málefni fyrir hátíðirnar. Þeir sem vilja taka þátt í söfnuninni til Kvennaathvarfsins geta millifært upphæð að eigin val inn á eftirfarandi reikning:

    Reikningsnúmer: 0370-13-004676
    Kennitala: 171177-4649

    Söfnunni lýkur á miðnætti sunnudaginn 16. desember mánudaginn 17. desember.

    Brynjólfur Erlingsson Kvennaathvarfið Nintendo Switch Söfnun Tölvuleikir - Spjall fyrir alla
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaLeikjarýni: Fallout 76 – „erfitt að mæla með leiknum“
    Næsta færsla Stofnaði nýjan tölvuleikjahóp – Blöskrar umræðan í tölvuleikjanetsamfélögum á Íslandi
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable

    23. janúar 2026

    Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026

    20. janúar 2026

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    19. janúar 2026

    Geisladiskabúð Valda á tímamótum

    17. janúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable

    23. janúar 2026

    Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026

    20. janúar 2026

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    19. janúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur
    • Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu
    • Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable
    • Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026
    • Bestu tölvuleikir ársins 2025
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.