Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Íslenskir tölvuleikir með Game Boy þema á GBJAM
    Fréttir

    Íslenskir tölvuleikir með Game Boy þema á GBJAM

    Höf. Bjarki Þór Jónsson12. október 2016Uppfært:12. október 2016Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Fimm leikjahönnuðir frá Íslandi tóku þátt í GBJAM leikjadjamminu í ár með jafn marga leiki. Þetta eru leikirnir Pongpongpongpong eftir Jóhannes G. Þorsteinsson, Wild Goose Chase eftir Skúla Óskarsson, Void-Dogs eftir Charles Palmer, Let’s Make Games eftir Jóhannes Sigurðsson og Hell-Bent eftir Torfa Ásgeirsson.

    Game Jam, eða leikjadjamm á óformlegri íslensku, er viðburður þar sem áhugafólk og fagfólk á sviði tölvuleikjahönnunar keppist við að búa til nýja tölvuleiki á mjög stuttum tíma og þá gjarnan út frá ákveðnum reglum eða völdu þema. Á GBJAM er Game Boy þema og þurftu leikirnir í ár að uppfylla fjögur skilyrði:

    • Leikurinn verður að vera með Game Boy þema.
    • Allir hlutir (assets) verða að vera búnir til á meðan leikjadjammi stendur.
    • Halda sig við upprunlega skjáupplausn Game Boy, eða 160px x 144px.
    • Nota aðeins 4 liti í leiknum.

    Þátttakendur fengu 10 daga til að búa til leik frá grunni og stendur nú kosning yfir á heimasíðu GBJAM 5 þar sem spilarar geta gefið leikjunum stig. Kosningu lýkur þann 16. október og í framhaldinu verður tilkynnt hvaða leikur hlaut flest stig.

    Við hvetjum lesendur til að tjékka á íslensku leikjunum. Hægt er að spila og nálgast nánari upplýsingar um leikina með því að smella á leikjatitlana hér fyrir neðan.

     

    Pongpongpongpong eftir Jóhannes G. Þorsteinsson

    Fjögurra manna PONG leikur. Klassík.

    pongpongpongpong

     

    Wild Goose Chase eftir Skúla Óskarsson

    Fangaðu gæsina. Minnir svolítið á Super Meat Boy í spilun.

    wild-goose-chase

     

    Void-Dogs eftir Charles Palmer

    Forðastu loftsteina til að safna stigum – og ekki deyja!

    void-dogs

     

    Let’s Make Games eftir Jóhannes Sigurðsson

    Leikur um að búa til leik! Fangaðu rétt merki til að safna stigum og búa til leik.

    lets_make_games

     

    Hell-Bent eftir Torfa Ásgeirsson

    PLAFF! Doom klón fyrir Game Boy.

    hell-bent

    Charles Palmer Game Jam GBJAM Jóhannes Gunnar Þorsteinsson Jóhannes Sigurðsson leikjahönnun Skúli Óskarsson Torfi Ásgeirsson
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaGunjack 2 frá CCP væntanlegur á Google Daydream
    Næsta færsla Leikjarýni: XCOM 2 (PS4)
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable

    23. janúar 2026

    Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026

    20. janúar 2026

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    19. janúar 2026

    Geisladiskabúð Valda á tímamótum

    17. janúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable

    23. janúar 2026

    Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026

    20. janúar 2026

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    19. janúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur
    • Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu
    • Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable
    • Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026
    • Bestu tölvuleikir ársins 2025
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.