Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Greinar»Þrír góðir sófa-leikir
    Greinar

    Þrír góðir sófa-leikir

    Höf. Daníel Páll30. apríl 2016Uppfært:30. apríl 2016Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Þar sem aðgengi að interneti er nánast orðinn sjálfsagður hlutur fyrir tölvuleikjaspilara þá eru flestir leikir í dag komnir með þann möguleika á að spila við aðra í gegnum internetið. Þetta er frábær þróun sem gerir mörgum kleift að spila með öðrum spilurum hvar svo sem þeir eiga heima.

    Fjölspilun í gegnum tölvuleiki er oft frábær upplifun en það er oft þar sem það vantar eitthvað. Stundum vantar að hafa meðspilarann sér við hlið til að geta gefið gott klapp á bakið þegar vel tekst til, eða hafa andstæðinginn nálægt sér til að sýna virkilega hversu yfirvegaður maður getur verið þegar búið er að sópa gólfið með manni í mörg skipti í röð.

    Við ætlum að byrja að fjalla um leiki sem hægt er að flokka sem sófa-leiki, en það eru leikir þar sem vinir, óvinir og ættingjar geta spilað á sama tíma.

    Margir nýlegir tölvuleikir styðja ekki möguleikann á að margir geti spilað á sama tíma í sömu tölvu, og þar með er ekki lengur sjálfsagt að það sé hægt að heimsækja vin sinn og hoppa með honum í leik. Við ætlum að byrja að fjalla um leiki sem hægt er að flokka sem sófa-leiki, en það eru leikir þar sem vinir, óvinir og ættingjar geta spilað á sama tíma.

    Hvort sem verið sé að spila að sameiginlegu markmiði eða keppa innbyrðis skiptir ekki. Þessi leikir eiga það allir sameiginlegt að það er hægt að spila þá á einum skjá. Þetta er ekki tæmandi listi, heldur munum við reglulega koma með lista sem þennan og fjalla um nýja leiki í hvert skipti.

     

    ROCKET LEAGUE 

    Rocket League coverartÞað er ekki annað hægt en að byrja að fjalla um leikinn Rocket League, en gagnrýni um leikinn má lesa hér. Stýra bílum til að keyra á bolta til að koma honum í mark eða körfu andstæðingana. Hvað getur klikkað? Frábær leikur til að spila með öllum.

    Þetta er hraður leikur og því gott að hafa einbeitinguna í lagi. Leikurinn skiptir skjánum niður á fjölda spilara, því getur verið að hver og einn spilari hafi lítinn skjá. Bara ennþá betri afsökun til að fá sér stóra sjónvarpið.

    Það geta 1-4 spilarar spilað leikinn. Þennan er hægt að nálgast á PC, PlayStation 4 og Xbox One.

     

    CHARIOT

    Chariot LogoChariot er þrautaleikur þar sem spilarinn stjórnar prinsessu sem er með jarðneskar leifar föður síns, kóngsins, og leitar að hvíldarstað fyrir þær. Vandamálið er að kóngurinn hefur mjög sterkar skoðanir um hvar hann eigi að vera grafinn, því þarf spilarinn að draga, ýta, lyfta og toga í vagn til að finna verðugan stað fyrir kónginn.

    Tveir spilarar geta spilað leikinn saman, en annar spilarinn stýrir þá unnusta prinsessunnar og kóngurinn hikar ekki við að kasta fram fyndnum ummælum um hann.

    Þetta er stórskemmtilegur þrautaleikur. Ég mæli eindregið með honum, og þá sérstaklega í samspili.

    Þennan er hægt að nálgast á PC, PlayStation 3, PlayStation 4, Xbox One og Wii U.

     

    STARWHAL

    starwhal

    STARWHAL er mjög sérstakur leikur þar sem spilarar stjórna dýri sem líkist náhvali en er samt í geimnum. Markmiðið er að ná að stinga oddinum þínum í hjartað á andstæðingnum. Hljómar einfalt, ekki satt? Rangt. Það getur verið erfitt að stýra þessum dýrum og sérstaklega þegar það eru fjórir spilarar í gangi þá þarf virkilega að pæla í vörn og árás.

    Þetta er ekki leikur sem maður á eftir að spila samfleytt í langan tíma, en gaman að hoppa í hann til að brjóta upp spilakvöldið.

    Allt að fjórir geta verið að spila leikinn.

    Þennan er hægt að nálgast á PC, Mac, Linux, PlayStation 3, PlayStation 4, Xbox One og Wii U.

    Chariot local coop local multiplayer Rocket League sófa leikir STARWHAL
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaVæntanlegir leikir í maí 2016 – Doom, Uncharted 4 og fleiri
    Næsta færsla Nýtt heimsmet sett á svifbretti
    Daníel Páll

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025

    Leikjafyrirtækin á Íslandi aldrei fleiri en nú

    19. nóvember 2025

    Leikjavarpið #62 – Steam Machine og GTA VI seinkað

    17. nóvember 2025

    Minnist vinar síns í nýjum tölvuleik – „André dreymdi um að læra íslensku“

    14. nóvember 2025
    Nýtt á Nörd Norðursins

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    • Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.