Birt þann 27. mars, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Nýtt 17 mínútna sýnishorn úr Battlefield 4
Einu og hálfu ári eftir útgáfu Battlefield 3 hefur EA birt 17 mínútna sýnishorn úr Battlefield 4 sem er væntanlegur á alla helstu leikjavélarnar næstkomandi haust. Sýnishornið er úr söguhluta leiksins.
Það er óhætt að segja að leikurinn líti ansi vel út og minnir að vissu leiti á Call of Duty: Black Ops II sem við gagnrýndum í fyrra. Sýnishornið er stútfullt að hasar og gerist meirihluti þess í skáldaðri útgáfu af borginni Baku í Azerbaijan.
Það ber að taka fram að Battlefield 4 er skotleikur og sýnishornið ekki ætlað börnum.
Við mælum svo með því að skrúfa gæðin upp í 1080p – njótið!
Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
ritstjóri Nörd Norðursins.