Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Fréttir1»Loftsteinadrífan Geminítar nær hámarki 13. og 14 desember
    Fréttir1

    Loftsteinadrífan Geminítar nær hámarki 13. og 14 desember

    Höf. Nörd Norðursins13. desember 2012Uppfært:14. desember 2012Engar athugasemdir1 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Næstu tvö kvöld og nætur nær loftsteinadrífan Geminítar hámarki og gera ráð fyrir fjölda sýnilegra stjörnuhrapa sem stefna frá Tvíburamerkinu (Gemini á latínu).

    Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn hafa verið með puttann á púlsinum og sendu frá sér tilkynningu þess efnis þriðjudaginn 11. desember:

     

    Á fimmtudagskvöldið og aðfaranótt föstudagsins nær loftsteinadrífan Geminítar hámarki. Geislapunkturinn er rétt hjá stjörnunni Kastor í Tvíburunum sem nefnast Gemini á latínu.

    Tvíburamerkið er á austurhimni í kringum miðnætti. Núna í ár eru skilyrð hagstæð til þess að skoða geminítana því það er engin truflun af tungli. Ef veðurskilyrði eru góð má búast við nokkrum tugum stjörnuhrapa á hverri klukkustund þar sem ljós trufla ekki.

    Næstu tveir dagar verða því ansi áhugaverðir hjá stjörnuáhugamönnum og nú höldum við bara í vonina um að veðurskilyrði verði góð. Í þriðja þætti Sjónaukans er fjallað nánar um loftsteinadrífuna. Hægt er að horfa á þáttinn hér fyrir neðan og hefst umfjöllunin þegar þrjár mínútur og átta sekúndur eru liðnar af þættinum.

    Forsíðumynd: Úr frétta tilkynningu Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarnesar og Stjörnufræðivefusins (skjámynd úr forritinu Stellarium (http://stellarium.astro.is) sem sýnir staðsetningu Tvíbranna á næturhimninum).

    – BÞJ

    Bjarki Þór Jónsson Geminítar Loftsteinadrífa sjónaukinn stjörnufræði Stjörnufræðivefurinn Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness tvíburamerkið
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaBókarýni: Salem’s Lot eftir Stephen King
    Næsta færsla Laugarásbíó sýnir The Hobbit á 48 römmum á sekúndu
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Out of the Loop fær uppfærslu fyrir jólin

    21. desember 2024

    Dr. Spil og Nörd Norðursins í samstarf

    26. september 2024

    SSD uppsetning í samstarfi við Tölvutek

    18. október 2021

    Leikjavarpið #26 – Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran

    13. ágúst 2021

    Ring Fit áskorun í febrúar!

    4. febrúar 2021

    Leikjavarpið #20 – Væntanlegir leikir 2021, Indiana Jones og Star Wars

    19. janúar 2021
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025

    Leikjafyrirtækin á Íslandi aldrei fleiri en nú

    19. nóvember 2025

    Leikjavarpið #62 – Steam Machine og GTA VI seinkað

    17. nóvember 2025

    Leggur til að stofna tölvuleikjabókaklúbb

    15. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    Myndbandsspilari
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ
    00:00
    00:00
    32:02
    Notaðu upp/niður örvahnappana til að auka eða minnka hljóðstyrkinn.

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    • Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður
    • Leikjafyrirtækin á Íslandi aldrei fleiri en nú
    • Leikjavarpið #62 – Steam Machine og GTA VI seinkað
    • Leggur til að stofna tölvuleikjabókaklúbb
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.