Bíó og TV

Birt þann 20. nóvember, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Freaks á Svörtum sunnudegi

Svartir sunnudagar hafa nú þegar sýnt Dawn of the Dead (1978), Black Sunday (1960) og Big Trouble in Little China (1986) og ekki annað hægt að segja en að Svartir sunnudagar sé frábær og nauðsynleg viðbót við íslenska kvikmyndahúsamenningu. Við hjá Nörd Norðursins höfum heillast af þessu framlagi og munum fylgja Svörtum sunnudögum eftir og gagnrýna þær myndir sem sýndar verða.

Næstkomandi sunnudag munu Svartir sunnudagar sýna Freaks (1932) eftir Tod Browning á filmu, og hafa af því tilefni sent eftirfarandi fréttatilkynningu frá sér í dag:

Svartir sunnudagar í Bíó Paradís hafa heldur betur slegið í gegn og hefur aðsóknin verið framar öllum vonum undanfarin sunnudagskvöld, þar sem aðstandendurnir Hugleikur Dagsson, Sjón og Sigurjón Kjartansson hafa staðið fyrir sýningum á ýmiskonar Költ myndum. Þeir félagar hafa nú fengið Pál Óskar Hjálmtýsson til liðs við sig og ætlar hann að halda sérstakt Tod Browning kvöld, þann 25 nóvember n.k. Sýningin samanstendur af Tod Browning myndum úr 8 millimetra filmusafni Páls Óskars, en þar standa uppúr 17 mínútna útgáfa af Dracula frá 1931 og svo hin umdeilda og marg-bannaða Freaks sem sýnd verður í fullri lengd. Páll mun einnig halda smá tölu um hinn rómaða meistara Tod Browning sem var gerður útlægur úr Hollywood eftir að hann gerði hina umdeildu Freaks, sem fjallar um líf og ástir fólks sem starfar í sirkus.

BÞJ

Deila efni

Tögg: , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑