Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi
Samantekt: Oblivion Remastered er vel heppnuð nostalgía með fallegri grafík og endurbættri spilun.
4
Góður
Eftir endalaus orðróma síðustu mánuði og vikur þá reyndust þeir auðvitað réttir og Bethesda Game Studios og Microsoft kynntu og gáfu út The Elder Scrolls IV: Oblivion – Remastered fyrir PC, PlayStation 5 og Xbox Series vélarnar þann 22. Apríl síðastliðin.
Leikurinn er hluti af Game Pass þjónustu Microsoft á PC og Xbox Series, svo ef þið eruð með áskrift þá er bara málið að sækja leikinn.
Orðrómarnir voru á þann veg að þessi nýja útgáfa leiksins yrði kynnt og gefin út samdægurs, en fólk var ekki endilega visst að það myndi reynast rétt. Þetta „shadow dropp“ reyndist þó rétt og leikurinn kom út og var fáanlegur til kaups strax og aðgengilegur á PC og Xbox Series fyrir áskrifendur Game Pass þjónustu Microsoft og Xbox.
Hvað er svo The Elder Scrolls IV: Oblivion – Remastered? Leikurinn ber remastered nafnið, sem vanalega táknar að leikurinn hefur verið uppfærður til að virka betur á nútíma vélbúnaði og kannski innihalda einherjar nýjungar og eða allt það aukaefni (DLC) sem hefur komið út fyrir leikinn í einum pakka. Allt þetta er rétt og svo mikið meira, margir vilja meina að þetta sé meira endurgerð en uppfærsla á leiknum sem kom út upprunalega í Mars 2006 fyrir Xbox 360 og PC og ári síðar á PlayStation 3.

Útlit leiksins hefur verið tekið í gegn frá grunni og nú keyrir Unreal 5 grafíkvélin sem færir heim Cyrodil til nútímans með uppfærðum karakter módelum, betri hreyfingum persóna, uppfærðri gervigreind, „Ray-tracing“ stuðningi, betrumbættu hljóði, nýjum raddleikurum, Knights of the Nine og The Shivering Isles aukapökkum leikins, ásamt þeir smærri pökkum sem komu út fyrir leikinn eftir útgáfu hans. Undir UE5, keyrir svo GameBryo vélin sem stjórnar heiminum og öðrum.
Franska fyrirtækið Virtuos Games sem vann að þessari útgáfu í samvinnu við Bethesda eru vel þekktir fyrir að vinna sem stuðnings stúdíó að stórum, leikjum ásamt að „porta“ eða yfirfæra leiki yfir á aðrar leikjavélar eins og Batman Arkham leikina yfir á Xbox One og PS4, XCOM 2 yfir á Nintendo Switch og þeir eru nú að vinna með Konami að, Metal Gear Solid Delta: Snake Eater sem er endurgerð af MGS 3: Snake Eater sem kom út árið 2004 upprunalega fyrir PlayStation 2, en var síðar færður yfir á ótal vélar og fékk HD uppfærslur. Þessi nýja útgáfa leiksins mun keyra á Unreal 5 grafíkvélinni og á að koma út í lok Ágúst á þessu ári á PC, PS5 og Xbox Series.

Ég gæti líklega eytt ótal tíma í að ræða um TES IV: Oblivion, ég sökkti hundruðum tíma í leikinn á Xbox 360 og síðar PC þegar hann kom út og er hann í miklu uppáhaldi hjá mér, þó að TES III: Morrowind eigi alltaf hjarta mitt, þar sem að hann var fyrsta leikurinn sem ég spilaði í seríunni.
Það er pínu fyndið að segja að einn af uppáhalds hlutunum mínum við þessa útgáfu af TES IV: Oblivion er möguleikinn að hlaupa með að ýta á L3 á DualSense pinnanum. Maður áttar sig ekki hvað það er tekið sem sjálfsagður hlutur, fyrr en upprunalega útgáfa leiksins er spiluð og ný og það er ekki hægt að hlaupa, bara þessi litli hlutur breytir hvernig maður ferðast um og flýtir fyrir sumum þreytandi köflum leiksins þegar þarf að fara á milli staða innan borgar eða svæðis.

Það er meiri fjölbreytni í röddum persóna leiksins núna, gamli Oblivion var þekktur fyrir hve fáir leikarar töluðu fyrir nær allar persónur leiksins, það var ekki óalgengt að heyra saman raddleikararann tala við aðra persónu sem hann talaði einnig fyrir í leiknum.
Nýtt í þessari útgáfu leiksins;
- Þriðju persónu myndavél leiksins hefur verið tekin í gegn og nú er hægt að spila leikinn í gegn þannig ef maður vill. Áður fyrr hefði þetta verið bónus, en hálf gagnslaus í spilun leiksins.
- Viðmót leiksins hefur verið nútímavætt en heldur samt svipuðum stíl og áður. Hægt er að filtera betur staði á korti leiksins og sýna bara það sem maður vill helst sjá og eftir tegund staðins.
- Að laumast um og nota boga og örvar er raunhæfur möguleiki, áður fyrr var það mjög óþægilegt og illa hannað fyrir þá sem vildu laumast um og ganga frá óvinum leiksins úr skugganum.
- Erfiðleikastig leiksins er ekki lengur rennisleði, heldur fimm mismunandi erfiðleikastig.
- Það er útlína utan um hluti sem þú ert að fara að taka upp, svo það minnkar líkurnar að taka upp vitlausan hlut.
- Áttaviti leiksins sýnir skrefafjöldann til næsta takmarks.

Þetta er bara brot af breytingum og lagfæringunum í TES IV: Oblivion – Remastered. Það er ljóst frá byrjun þegar er spiluð þessi útgáfa að þeir sem unnu að henni höfðu lagt tíma í eldri útgáfu leiksins og var aðdáendur seríunnar.
Ég spilaði leikinn á PlayStation 5 Pro vélinni minni og keyrði hann sæmilega þar þrátt fyrir einstaka hikst og rammahraða sveiflur sem verður vonandi lagað fljótlega. Leikurinn tekur um 120GB af SSD disk PS5 vélarinnar.
Það helsta sem hrjáir leikinn eins og er, eru tæknilegir örðugleikar og vandi með óstöðuleika leiksins og rammahraða (fps). Unreal Engine 5 leikir eiga til að vera þungir í keyrslu og vera ekki alltaf bestir þegar kemur að stórum opnum leikjaheimum. Leikurinn er nú þegar búin að fá nokkra plástra (patches) og eru fleiri á leiðinni. Gamli leiksinn var þekktur fyrir alls konar villur og galla og sumir voru hluti af sjarma leiksins fyrir marga sem spiluðu leikinn. Það má búast við að Bethesda og Virtuos Games muni á næstu vikum og mánuðum laga helstu galla og villur leiksins. Það er síðan vonandi að það verið fáanleg áþreifanleg útgáfa af leiknum síðar meir, fyrir okkur leikjasafnarana sem vilja hafa leikinn upp í hillu.

Það er búið að vera ótrúlega gaman að heimsækja heim Cyrodil á ný. Eitthvað sem ég hafði ekki gert í líklega meira en fimmtán ár að viti. Þessi leikur er í miklu uppáhaldi hjá mér og er það bara TES III: Morrowind sem toppar hann fyrir mig.
Að mínu mati er vel þess virði að kíkja aftur á Oblivion eða í fyrsta skiptið og sjá marga af þeim atburðum sem TES V: Skyrim vísaði oft í gegnum sögu hans. Þetta ætti vonandi að gera biðina eftir The Elder Scrolls VI eitthvað bærilegri, það er engin leið að vita hvenær sá leikur kemur út, Bethesda er búið að vera að vinna að honum lengi og á fullri ferð síðan að Starfield kom út í Sept 2023.
Skellið á ykkur herklæðin eða galdra kuflinn og lokið hliðum Oblivion og bjargið Cyrodil! Það er næg ævintýri sem bíða ykkar þar.
Eintak í boði útgefanda.