Fréttir

Birt þann 17. ágúst, 2023 | Höfundur: Sveinn A. Gunnarsson

Útgáfu Alan Wake 2 seinkað um 10 daga

Remedy hefur tilkynnt um að væntanlegi hryllingsleikur þeirra Alan Wake 2 muni seinka um 10 daga og  er væntanlegur í verslanir þann 27. október.

Í fréttatilkynningu frá finnska fyrirtækinu var nefnt að októbermánuður væri að vera frekar þéttur í leikjaútgáfunni og þeir vildu gefa fólki meiri tíma til að ná að spila það helsta.

„Október er frábær mánuður fyrir tölvuleiki og við vonum að þessi tilfærsla muni gefa fólki meira svigrúm að njóta uppáhalds leikja þeirra,“ sagði Remedy.

Alan Wake 2 átti að koma út í sömu viku og Spider-Man 2 frá PlayStation og Insomniac Games. Fyrsti Alan Wake leikurinn sveið fyrir það í sölu árið 2010 að koma út í sömu viku og risaleikur Rockstar Games, Red Dead Redemption.

Í október eru leikir eins og Forza Motorsport, Assassin‘s Creed: Mirage, Super Mario Bros: Wonder, Lords of the Fallen, Cities Skylines 2, Alone in the Dark og Metal Gear Solid Master Collection Vol.1.

Í október eru leikir eins og Forza Motorsport, Assassin‘s Creed: Mirage, Super Mario Bros: Wonder, Lords of the Fallen, Cities Skylines 2, Alone in the Dark og Metal Gear Solid Master Collection Vol.1.

Það er stutt síðan að Ubisoft flýttu útgáfu AC: Mirage um viku til 5. október, líklega til að vera á undan hasarnum sem fylgir þessum mikla leikja mánuði.

Það er ljóst að tölvuleikjaunnendur eiga von á góðu í október miðað við þá tölvuleiki sem hafa verið staðfestir hingað til.

Alan Wake 2 kemur út á Epic Game Store á PC, PlayStation 5 og Xbox Series X/S, eingöngu í stafrænu formi. Í fréttatilkynningu frá Remedy þá hefur fyrirtækið talað um að það sé gert til að halda verði leiksins niðri og ekki þurfa að gefa út leikinn á disk og fólk þurfti síðan að sækja stóran hluta hans þegar komið er heim.

Það er þó vonandi að ef leiknum gengur vel að við útgáfu hans í einhverju öðru formi síðar meir, kannski með öllu því niðurhalsefni sem verður gefið út fyrir leikinn í einum pakka.

Heimild: Remedy

Deila efni

Tögg: , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑