Leikjarýni

Birt þann 28. október, 2022 | Höfundur: Sveinn A. Gunnarsson

0

Uncharted safnið kemur á PC

Uncharted safnið kemur á PC Sveinn A. Gunnarsson

Samantekt: Hörku hasar pakki sem klikkar ekki

4

Flottur pakki


Í vikunni kom út Uncharted: Legacy of Thieves safnið á PC og er fáanlegt í gegnum Steam og Epic Store búðirnar. Safnið inniheldur Uncharted 4: A Thief’s End og Uncharted: Lost Legacy. Hingað til hefur eingöngu verið hægt að spila leiki í seríunni á PlayStation leikjavélunum. Þetta safn byggir á því sem kom út fyrr á árinu fyrir PlayStation 5 ásamt að styðja við þá ótal möguleika sem PC býður upp á. Það eina sem vantar úr leikjunum á PlayStation 4 er fjölspilun Uncharted 4.

Hér fyrir ofan er útgáfu kitlan fyrir safnið og stillir upp sögunni og hasarnum sem er í boði í báðum leikjunum. Fyrirtækið Iron Galaxy sá um að færa leikina yfir af PlayStation á PC. Þeir hafa “portað” Spyro og Crash Bandicoot söfnin á PC og The Elder Scrolls V: Skyrim yfir á Nintendo Switch og tekið að sér ótal fleiri verkefni.

Uncharted 4: Thiefs End kom út árið 2016 og fékk 4.5/5 mögulegum hjá okkur og sagði gagnrýnandinn okkar að Leikurinn er tækniundur frá a til ö. Allt er eins og það á að vera en samt er ekkert sem kemur manni á óvart.  

Uncharted: Lost Legacy kom upprunalega út 2017 og fékk 4/5 stjörnum hjá okkur. Sami gagnrýnandi á UC4, dæmdi þennan hann Jósef Karl og sagði Nathan Drake fær hvíld og stöllurnar Chloe og Nadine taka við og sparka í rassa. 

Við mælum endilega með að lesa dómana tvo fyrir ofan til að læra meiri um þessi leiki.

Myndbandið sem fylgir þessari grein fer í gegnum PC útgáfuna og hvað er í boði í henni og auðvitað hvernig safnið kemur út á PC.

Það er jákvætt að sjá að Sony heldur áfram að gefa út PlayStation leiki á PC og leyfa sem flestum að spila mikið að betri leikjum síðari ára. Leikir eins og The Last of Us: Part 1, Spider-Man: Miles Morales, Sackboy: A Big Adventure eru nú þegar staðfestir og orðrómar eru um fleiri á næstunni. Mig dreymir um Demon’s Souls endurgerðina á PC og hvað þá Bloodborne í einhverju formi.

Kaup Sony fyrr á árinu á hollenska fyrirtækinu Nixxes var klárlega skref hjá þeim í þessum málum.

Fyrir þá sem hafa aldrei spilað Uncharted leikina þá er auðvelt að mæla með þessu safni, það eru litlir tæknilegir örðugleikar, en þeir ættu að verða lagaðir fljótlega.

Ekki missa af tveimur af betri hasar- og ævintýraleikjum síðari ára.

Eintak var í boði útgefanda

Deila efni

Tögg: , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Comments are closed.

Efst upp ↑