Leikjarýni

Birt þann 26. júní, 2017 | Höfundur: Sveinn A. Gunnarsson

0

Heimsókn til Morrowind

Heimsókn til Morrowind Sveinn A. Gunnarsson

Samantekt: Það er gaman að kíkja aftur til Morrowind og það er nóg af efni til að stytta fólki stundir.

4

Heillandi


Netfjölspilunarleikir eins og World of WarCraft o.fl. hafa verið síðustu árin að færa sig meira yfir á hinn stóra leikjatölvumarkað með mis góðum árángri. Fæstir hafa lagt í að vera með beint áskriftarmódel eins og WoW nema kannski Final Fantasy XIV: A Realm Reborn á PS3 og PS4.

Flest aðrir leikir hafa komið út sem „Free 2 Play“ þar sem er ekkert greitt fyrri leikinn og bara verslað aukahluti og þjónustu, síðan er módelið sem The Elder Scrolls Online: Tamriel Unlimited kynnti til leiks árið 2015 þegar leikurinn var endurhannaður og gefin út á leikjavélarnar. Þar er nóg að kaupa leikinn til að byrja að spila og síðan fjárfesta í aukaefni ef fólk vill, einnig er áskriftarmódel í boði með auknum glaðningum fyrir þá all hörðustu.

Ári seinna kom síðan One Tamriel breytingin sem gerði fólki auðveldara að spila saman óháð kynstofni, klassa eða á hvaða leveli það væri á.

The Elder Scrolls RPG serían er gríðalega stór og vinsæl og hefur vaxandi síðustu árin eftir brösuga byrjun með ESO, þá hefur hann tekið við sér í fjölda leikmanna og vinsældum.

The Elder Scrolls Online: Morrowind er fyrsti stóri aukapakkinn sem leikurinn hefur fengið á disk frá útgáfu hans 2014 ef ekki er talið með Gold-safnið sem tók saman The Imperial City, Orsinium, Thieves Guild og The Dark Brotherhood í einn pakka og höfðu áður verið eingöngu fáanlegir í stafrænu formi.

Aðdáendur TES III: Morrowind ættu að kannast vel við þetta kort.

Morrowind er nafn sem margir Elder Scrolls unnendur kannast vel við. The Elder Scrolls III: Morrowind kom út árið 2002 á PC og Xbox og fagnar um þessar mundir 15 ára afmæli sínu.

Eins og í Morrowind, þá gerist saga ESO: Morrowind einnig á Vvaardenfell-eyjunni á Morrowind svæði Tamriel-heimsins. Hún er austan við Skyrim fyrir áhugasama. Sagan í ESO: Morrowind gerist um 700 árum fyrir atburði TES III: Morrowind og sýnir leikmönnum þennan heim sem þau þekkja svo vel aðeins öðruvísi en áður. Vivec-borgin er enn í hönnun og landslagið er ekki alveg jafn eyðilegt og maður man eftir því.

Seyda Neen þorpið togar mikið í nostalgíu þræði eldri leikmanna TES leikjanna.

Eins og í öllum fyrri leikjum þá fara leikmenn í fótspor fanga sem þarf að fóta sig í dularfullu landslagi þar sem mörg öfl eru að verki og sum þeirra ógna heimasvæði dökk-álfanna. Eftir stutta kynningu byrja leikmenn í Seyda Need, svæði sem ætti að vera spilurum vel kunnugt.

Það tekur frá 20-30 tíma að klára grunnsögu þessarar viðbótar og síðan eru ótal önnur verkefni í boði, svæði til að kanna, skrímsli og dýflissur til að sigra og bætir það nokkrum tugum tíma við. Eitt af því sem ESO hefur alltaf gert svo vel að mínu mati er að ná að vera með þessa söguhluta úr RPG leikjunum í opnum MMORPG leik. Það er fullt af rödduðum persónum til að kynnast og mikið af bestu ævintýrum leiksins er að finna utan alfaraleiðar.

Stóru sveppirnir eru alltaf eitthvað sem setti svip á Vvardenfell.

Það er nýr klass til að spila sem núna sem kallast, Warden. Hann minnti mig pínu á Hunter klassan úr WoW. Það eru þrjár hæfileika línur að velja úr og prufa hvað hentar sér;

  • Animal Companions – Warden kallar á dýr eins og cliff racers, shalks, og jafnvel stríðsbjörn til að berjast með sér.
  • Green Balance – Warden kallar fram ýmsar plöntur til að vernda og lækna sig og félaga sína.
  • Winter’s Embrace – Warden vefur sig í kulda og ís til að vernda sig fyrir árásum óvina og skaða þá.

Eitt af því nýja sem ESO: Morrowind bætir við ESO er Battlegrounds, sem er 4x4x4 svæði til að berjast á þegar þú nærð lvl.10 í leiknum. Þetta er PvP (leikmenn á móti leikmönnum), þar sem hraðinn skiptir öllu og hver leikur tekur um 10 mínútur. Það er hægt að keppa í, Team Deathmatch, Capture the Relic og Domination.

Það er nýtt 12 manna prófun (trial) til að taka þátt í sem heitir; The Halls of Fabrication og inniheldur 5 aðalóvini til að verjast við og margar banvænar þrautir sem reyna á samvinnu hópsins til að lifa af.

Halls of Fabrication mun reyna á hópinn.

Þegar allt þetta er búið er síðan restin af Tamriel opin fyrir leikmönnum til að kanna í fyrsta sinn eða aftur eftir einhvern tíma og sjá hvað hefur þá breyst. Pakkarnir sem fylgdu með Gold-útgáfunni eru ekki innifaldnir en er hægt að kaupa sér fyrir fólk sem langar að sökkva dýpra í leikinn.

TES III: Morrowind er uppáhaldsleikurinn minn í seríunni svo það var mjög sérstakt og spennandi og koma hingað aftur, en á sama tíma sjá svæðið áður en atburðir hins leiksins gerðust. Ég vissi ekki hverju ég átti von á og hvort að ég myndi finna mig aftur í þessum heimi. Auðvitað mun MMORPG leikur ekki ná að kalla fram sömu reynslu og handsmíðaður einmennings RPG-leikur, það er ljóst strax, en það sem er í boði er almennt vel gert. Það var gaman að sjá lifandi Guðinn Vivec á ný og einnig hvernig blessaði steinninn ofan við Vivec City lenti þarna.

Vivec City setur svip sinn á Vvardenfell og mikið af sögunni gerist útfrá henni.

ESO: Morrowind kemur með nóg af nýju efni til að heilla eldri leikmenn og á sama tíma auðveldar nýjum leikmönnum að komast inn í þennan stóra heim og undirbúa fyrir restina af Tamriel.

Það er mjög jákvætt að sjá hvernig ESO hefur breyst frá útgáfu og að Bethesda og ZeniMax Studios hafa haldið áfram að byggja á því sem virkaði og breyta því sem gekk ekki upp. Það hefur sést í sölu og spilunafjölda leiksins, það var gáfulegt að velja Morrowind sem viðbót, enda mjög vinsæll leikur í Elder Scrolls seríunni og það er nóg af nostalgíu að finna í ESO: Morrowind fyrir áhugasama.

Ég er spenntur að sjá hvað þeir gera næst og halda áfram að kanna ESO eftir að hafa dottið úr honum eins og svo margir á sínum tíma, ekki sakar að hann lítur mjög vel út á PlayStation 4 Pro og HDR-útlit leiksins er á köflum mjög flott.

Deila efni

Tögg: , , , , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Comments are closed.

Efst upp ↑