Bíó og TV

Birt þann 27. júní, 2016 | Höfundur: Nörd Norðursins

Leitum að kvikmyndanörd

Horfiru mikið á kvikmyndir? Áttu vígalegt Blu-Ray safn? Langar þig að deila kvikmyndavisku þinni með öðrum? Við á Nörd Norðursins leitum að kvikmyndanörd sem hefur áhuga á því að skrifa um ýmislegt tengt heimi kvikmynda, þar á meðal fréttir, gagnrýni og greinar. Æskilegt er að viðkomandi hafi góð tök á íslensku og brennandi áhuga á kvikmyndum, þ.á.m. vísindaskáldskap, ofurhetjumyndum, ævintýramyndum og hrollvekjum. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við ritstjórn með því að senda póst á netfangið nordnordursins(at)gmail.com.

Myndir: Svarthöfði og Wikimedia Commons (blýantur)

Deila efni

Tögg:


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑