Fréttir

Birt þann 16. júní, 2015 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

E3 2015: Shenmue 3 fjármagnaður í gegnum Kickstarter

Hlutverkaleikirnir Shenmue (1999) og Shenmue 2 (2001) náðu nokkrum vinsældum meðal Dreamcast spilara á sínum tíma. Leikirnir bjóða upp á djúpa sögu og fjölbreytta spilun sem gengur ekki bara út á að berjast við andstæðinga sína, heldur einnig að takast á við nokkuð hversdagslega hluti. Leikina má möglega flokka sem költ leiki á vesturlöndum vegna sérstöðu sinnar og hefur ekki sést til Shenmue leiks síðan að SEGA hætti framleiðslu á Dreamcast.

Á kynningarfundi Sony var tilkynnt að Yu Suzuki, höfundur Shenmu leikjanna, hefði hrint af stað Kickstarter fjármögnun fyrir Shenmue 3 á PC og PS4. Leikurinn mun vera beint framhald af Shenmue og Shenmue 2 og verður notast við Unreal 4 leikjavélinna við gerð leiksins. Á Kickstarter síðunni kemur fram að ástæðan fyrir því að Yu ákvað að fjármagna leikinn í genum Kickstarter er sú að hann sækist eftir meiri nálægð við aðdáendur Shenmue.

Óskað var eftir tveimur milljónum Bandaríkjadala í fjármögnun – sem gera um 265 milljónir íslenskar krónur í dag. Þetta hljómar kannski eins og há tala, en aðdáendur leikjanna sendu frá sér skýr skilaboð og hafa safnast saman tæpar þrjár milljónir Bandaríkjadala í gegnum Kickstarter þegar þessi frétt er skrifuð – og enn er heill mánuður eftir af fjármögnunartímanum. Það er því öruggt að leikurinn fari í framleiðslu. Þeir sem fjármagna verkefnið um 29 Bandaríkjadali (u.þ.b. 3.800 kr.) eða meira fá eintak af leiknum þegar hann kemur á markað.

BÞJ / Heimild: Sony á E3 2015 og Kickstarter

Deila efni

Tögg: , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑