Fréttir

Birt þann 15. júní, 2015 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

E3 2015: Nýr Doom leikur væntanlegur

Bethesda kynnti nýjan Doom leik á E3. Árið 1993 kom fyrsti Doom leikurinn á markað sem náði fljótt miklum vinsældum. Leikurinn var talinn einstaklega brútal á sínum tíma og er einn af þeim leikjum sem gerði fyrstu persónu skotleikina fyrst vinsæla. Bethesda sýndi nýtt sýnishorn úr leiknum sem lítur ansi vel út. Leikurinn minnir á blóðuga útgáfu af Halo, á sterum, í helvíti.

Í sýnishorninu sjáum við meðal annars haglarann, plasma riffilinn og keðjusögina í verki. Einnig sjáum við hvernig spilarinn getur skipt um vopn í leiknum. Leikurinn mun bjóða upp á fjölspilun og virðist Bethesda hafa lagt mikla vinnu í þann hluta. Fjölspilunin virkar fyrir að vera hröð og geta spilarar valið á milli fjölda mismunandi borða og mismunandi fjölspilunarreglum. Doom Snapmap fylgir leiknum en þar geta spilarar búið til sín eigin borð, deilt sköpunarverki sínu með öðrum Doom spilurum og sótt efni sem aðrir spilarar hafa búið til.

Endum þetta á seinna sýnishorninu sem Bethesda sýndi á kynningunni fyrr í dag, en þar er spilarinn staddur í helvíti.

Athugið að sýnishornin eru ekki ætluð börnum eða viðkvæmum!

BÞJ / Heimild: Bethesda á E3 2015

Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑