Bækur

Birt þann 9. ágúst, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Námsstofa um valdabaráttuna í Hungurleikunum haldin 18. ágúst

Sunnudaginn 18. ágúst mun Róttæki sumarháskólinn standa fyrir námsstofu um valdabaráttuna í Hungurleikunum. Nanna Hlín Halldórsdóttir, doktorsnemi í heimspeki við Háskóla Íslands og áhugamanneskja um fantasíur, vísindaskáldskap og sjónvarpsþætti, mun ræða um þríleikinn.

Á Facebook-síðu viðburðarins kemur eftirfarandi fram:

 

Þríleikurinn fæst við erfiðar spurningar um samskipti, vald og andóf í samhengi við stéttarátök og ójafna dreifingu veraldlegra gæða í heimi sem í fyrstu virðist svo afskapega ólíkur okkar … en er það svo? Í námstofunni verður spurt hvað við getum lært um samtakamátt og andóf í okkar eigin heimi út frá átökum Hungurleikanna og þá sérstaklega hversu langt eigi að ganga í að „selja“ andófshugmynd.

 

Námsstofan hefst kl. 18:00 í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121 (4. hæð),  og stendur yfir til kl. 19:45.

Aðgangur ókeypis og öllum opinn.

Mynd: Hunger Games kvikmyndin (2012) / -BÞJ
Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑