Menning

Birt þann 6. mars, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

EVE Online í MoMA

Undanfarin ár hafa listasöfn sýnt tölvuleikjum aukinn áhuga og hélt Smithsonian-safnið í Bandaríkjunum meðal annars sérstaka tölvuleikjalistasýningu í fyrra.

Laugardaginn 2. mars síðastliðinn var sýningin Applied Design opnuð í nýlistasafninu MoMA í New York. Fjöldi fjölbreyttra verka eru til sýnis á þessari sýningu, þar á meðal 14 tölvuleikir sem þykja framúrskarandi í gagnvirkri hönnun. Íslenski leikurinn EVE Online frá CCP er á meðal þeirra sem eru til sýnis og er hann heldur betur í góðum félagsskap eins og sjá má á þessum lista yfir leiki sem eru til sýnis á sýningunni, en þetta eru fyrstu leikirnir sem eru til sýnis í MoMA:

  • Pac-Man (Namco, 1980)
  • Tetris (Alexey Pajitnov, 1984)
  • Another World (Eric Chahi, 1991)
  • Myst (Cyan, 1993)
  • SimCity 2000 (Maxis, 1994)
  • Vib-Ribbon (NanaOn-Sha, 1999)
  • The Sims (Maxis, 2000)
  • Eve Online (CCP Games, 2003)
  • Katamari Damacy (Namco, 2004)
  • Dwarf Fortress (Tarn and Zach Adams, 2006)
  • Flow (thatgamecompany, 2006)
  • Portal (Valve Software, 2007)
  • Passage (Jason Rohrer, 2008)
  • Canabalt (Adam Saltsman, 2009)

 

RÚV var með skemmtilega umfjöllun og myndir frá sýningunni í menningarþættinum Djöflaeyjan sem var sýndur í sjónvarpinu í vikunni. Þar náðu þau meðal annars tali við Torfa Frans Ólafsson, listrænan stjórnanda hjá CCP, sem segir að leikurinn hafi fyrst og fremst verið valinn á sýninguna þar sem hann er hermir á vísindaskáldsögu-samfélagi með yfir 400.000 spilara. Til gamans má geta tóku EVE Online spilarar stóran þátt í að móta sýninguna þar sem þeir tóku upp mikið af því efni sem er notað. Við mælum með því að horfa á umfjöllunina í heild sinni hér, en umfjöllunin byrjar þegar 28 mínútur og 45 sekúndur eru liðnar af þættinum.

Sýningin stendur til 31. janúar 2014.

Eve Online - MoMA

Mynd frá sýningunni. Eve Online er á miðri myndinni með stjörnukort í bakrunni. // Birt með leyfi MoMA.

 

Heimildir: CCP, MoMA, RÚV, Polygon og Djöflaeyjan.
Forsíðumynd: EVE Online.

 

Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
ritstjóri Nörd Norðursins.

 

 

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑