Bíó og TV

Birt þann 18. desember, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Marsbúar ræna jólasveininum í Bíó Paradís

Svartir Sunnudagar ætla að sína jólamyndina Santa Claus Conquers the Martians, eina af verstu kvikmyndum allra tíma, annan í jólum kl. 20:00 í Bíó Paradís. Á heimasíðu Bíó Paradísar er myndinni lýst svona:

Hvað er til ráða þegar börnin á Mars eru orðin of köntuð og leiðinleg af vélrænu uppeldi og aga? Jú, þá er best að fara til jarðarinnar og ræna jólasveininum. Og svo það sé öruggt að það sé alvöru jólasveinninn sem er fluttur með valdi til plánetunnar rauðu er tveimur jarðarbörnum rænt  í leiðinni og tekin með. Þar hefst leikfangaframleiðsla sem er ógnað af gleðispillinum Voldar sem gerir allt sem í hans valdi stendur til að eyðileggja dótið og koma börnunum og Sveinka fyrir kattarnef. Tekst börnunum tveimur að snúa á Voldar í samvinnu við jólasveininn og Marskrakkana Girmar og Bómar? Eru jólin komin til að vera á Mars? Eru vélmennin virkilega búin til úr pappakössum og álpappír?

Svörin er að finna í „Santa Claus Conquers the Martians“, jólamynd Svartra sunnudaga. Myndin er talin ein „versta“ kvikmynd allra tíma um leið og hún er orðin sígild skemmtun fyrir fólk með smekk fyrir hinu undarlega.

Sýnd annan í jólum kl. 20.

BÞJ

Deila efni

Tögg: , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑