Fréttir1

Birt þann 16. nóvember, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Segulljóð – Nýtt íslenskt smáforrit

Í dag kom út nýtt alíslenskt app, Segulljóð. Um er að ræða forrit fyrir iPad, iPhone og iPod Touch sem virkjar sköpunargáfur notandans og kveikir áhuga á tungumálinu. Forritið er hugsað til ljóðasköpunar og leiks með tungumálið, en í Segulljóð er hægt að búa til ljóð, örsögur eða kveðjur til vina úr yfir 13.000 orðum sem forritið velur.

Hjónin Friðrik Magnússon og Guðný Þorsteinsdóttir eru höfundar leiksins, en þau sérhæfa sig í gerð tölvuleikja og markmiðlunarefnis og stóðu m.a. á bakvið leikinn 12 Stacks of Christmas.

Á heimasíðu Segulljóðs, www.segulljod.is, má nálgast nánari upplýsingar um forritið, en þar kemur m.a. fram hvernig forritið virkar:

Í forritinu eru átta mismunandi orðaþemu með samtals yfir 13 þúsund orðum sem öll orð hafa allar mögulegar birtinga- og beygingamyndir. Nafnorð eru bæði með og án greinis og lýsingarorð og sagnorð geta haft tugi orðmynda. Þegar hafist er handa við nýtt verkefni stillir notandinn úr hvaða orðaþemum hann vill fá orð. Einnig er hægt að stilla fjölda orða úr hverjum orðflokki. Forritið velur svo með slembivali orð úr viðeigandi pökkum til að nota við ljóðagerðina. Þegar ljóðavinnan er hafin er hægt að bæta við orðum úr öllum orðflokkum. Einnig geta þeir sem vita hvað þeir vilja bætt við eigin orðum til þess að ná að fullkomna ljóðið sitt. Útlit ljóðanna er hægt að breyta að vild, letur, litir og bakgrunnur er meðal þess sem hægt er að still nánast að vild og ná þannig fram réttu stemmingunni fyrir ljóðið þitt.  Þegar ljóð er tilbúið er hægt að gefa það út á segulljod.is eða deila því á með vinum á Facebook, Twitter og með tölvupósti.

Í eftirfarandi kynningarmyndbandi sést hvernig forritið virkar

BÞJ

Deila efni

Tögg: , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑