Fréttir1

Birt þann 8. maí, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Portal 2: The Perpetual Testing Initiative

Í dag, 8. maí 2012, kemur út frí viðbót fyrir meistaraverkið Portal 2 sem mun gera spilurum kleift að búa til sína eigin þrautaklefa (Test Chambers).

Fyrirtækið Valve gaf út skemmtilegt kynningarmyndband fyrir viðbótina sem hægt er að sjá hér fyrir neðan.

Viðbótina verður hægt að sækja á PC eða Mac og hefur hún fulla tengingu við Steam Workshop sem er öflugt og þekkt tól innan Steam forritsins. Steam Workshop gefur spilurum auðvelda leið til að búa til efni og deila því meðal jafninga sem spila sama leik. Því má búast við því að mikið magn af þrautaklefum fyrir Portal 2 verði rúllað af færibandi Aperture Science og gert aðgengilegt fyrir alla.

Okkur klæjar í fingurnar að komast yfir tólin og geta búið til þrautir og fá aðra til að leysa þær. Prufa þrautir frá öðrum spilurum og sjá hvaða snilldar hugmyndir eiga eftir að koma frá samfélaginu.

Okkur hlakkar líka mikið til að feta í fótspor GlaDOS og tala með vélmennaröddu!

Ef þú hefur ekki kynnt þér Portal 2 þá mælum við sterklega með því og getum vísað á leikjarýni um leikinn á þessari vefsíðu, sjá hér.

Endilega sendið okkur upplýsingar ef þið búið til skemmtilegar þrautir.

DPJ

Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Skildu eftir svar

Efst upp ↑