Bækur og blöð

Birt þann 3. febrúar, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Nine Worlds

Rúnar Þór er upprennandi rithöfundir sem skrifar undir nafninu R. Thor. Hægt er að niðurhala smásögum Rúnars úr fantasíuheiminum Nine Worlds ókeypis á netinu í formi PDF, ePub og mobi. Allar bækur Rúnars eru á ensku.

Í tengslum við sögurnar hefur Rúnar skapað og teiknað upp sinn eigin fantasíuheim sem hann byggðir á norrænni goðafræði. Þegar kemur að skrifum sagnanna segist hann ekki hafa áhuga á að skrifa um þessar stereótýpísku víkíngasögur þar sem allir eru sterkir og hugrakkir og berjast á daginn og drekka mjöð á kvöldin heldur vilji eitthvað raunsærra, þar sem veikleikar eru jafn algengir og styrkleikar og jafnvel mestu hetjur væru meingallaðar þegar litið væri undir yfirborðið.


Kort af Miðgarði sem Rúnar hannaði.

Rúnar dregur innblástur frá ýmsum áttum: Forgotten Realms, The First Law, A Song of Ice and Fire og Lord of The Rings. Hann hefur einnig lesið mikið eftir Joe Abercrombie og lítur á hann sem einskonar fyrirmynd þegar kemur að ritstíl. Rúnar segir að „Nine Worlds svipar til bæði The First Law og A Song of Ice and Fire að því leyti að þær eru mjög dimmar, grófar og ofbeldisfullar og einblína mikið á að halda öllu sem raunverulegast.“

Í síðasta mánuði var vefsíða Nine Worlds opnuð þar sem Rúnar stefnir á að birta nýja stuttsögu á  mánaðarfresti.

Smelltu hér til að heimsækja vefsíðu Nine Worlds.

BÞJ

 

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Skildu eftir svar

Efst upp ↑