Bækur og blöð

Birt þann 19. desember, 2011 | Höfundur: Nörd Norðursins

2

Locus Origin – The Never Born komin í verslanir!

Vísindaskáldsagan Locus Origin – The Never Born kom út í lok október síðastliðnum og er fyrsta bókin af níu í Locus Origin seríunni. Þó verkið sé á ensku er höfundur þess Íslendingur sem kýs að ganga undir höfundarnafninu Christian Matari og vill ekki gefa upp sitt raunverulega nafn. Það sem við vitum er að hann er á fertugsaldri, starfar hjá CCP, hefur brennandi áhuga á vísindaskáldsögum og fantasíum og hefur unnið í nokkur ár að gerð Locus Origin.

Sagan í Locus Origin hefst árið 3.672 og gerist á skálduðum stað í alheiminum – nánar til tekið í Merillian vetrarbrautinni. Á heimasíðu seríunnar er fyrstu bókinni, Locus Origin – The Never Born, lýst á eftirfarandi hátt:

Over a century after the seedship Lazarus completed its near 1,200 year journey, the Terran colonies found themselves in conflict with a hostile alien race.In a world decimated by a long, drawn-out war where a never-ending stream of fresh clones are fed to the Terran war machine, a genetically engineered squad of soldiers must fight to survive against all odds.When society is ruled from behind the scenes by massive corporate conglomerates that control powerful secret organizations and even the very Republic itself, the clones will come to question the world they live in, their fellow soldiers, and even the very nature of their existence. What’s more, they must struggle to establish their own identities in a world that has little respect for human life, and even less for that of a clone.

Á heimasíðunni er að finna virkilega vandaðar myndir byggðar á efni bókarinnar ásamt fróðleik um Locus Origin. Það er augljóst að mikill metnaður hefur verið lagður í gerð bókarinnar sem hefur hlotið ansi góða dóma meðal lesenda.

Prentuð eintök af fyrstu bókinni er hægt að nálgast á Amazon á $15 og rafræna útgáfu má nálgast á Smashwords á $5.

Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



2 Responses to Locus Origin – The Never Born komin í verslanir!

Skildu eftir svar

Efst upp ↑