Vafra: Leikjarýni
Upprunalega kom Assassin’s Creed IV: Black Flag út árið 2013 fyrir PlayStation 3, Xbox 360, PC og Nintendo Wii U. Síðar fékk leikurinn uppfærða útgáfu á PlayStation 4 og Xbox One. Leikurinn seldist mjög vel og aðein Assassin’s Creed: Valhalla hefur selst í fleiri eintökum en hann. Það voru búnir að vera þráðlátir orðrómar síðustu árin að franski leikjaútgefandinn Ubisoft stefndi á að endurgera AC Black Flag og það var loks staðfest fyrr á þessu ári. Assassin‘s Creed: Black Flag – Resynced er endurgerð frá grunni af upprunalega leiknum keyrandi á nýjustu útgáfunni af Anvil grafíkvélinni. Ubisoft Singapore leiddi vinnuna…
Fyrir hátt í þremur árum síðan kom út leikurinn Starfield á PC og Xbox leikjavélar Microsoft. Um var að ræða gríðarlega metnaðarfullan leik frá Bethesda Softworks. Fyrirtækið hefur hingað til verið þekktast fyrir Elder Scrolls og síðar Fallout leikina og átti Starfield að vera fyrsta nýja verkefnið þeirra og bæta við öðrum burðarstólpa í leikjaseríur þess. Við tókum fyrir leikinn á sínum tíma og er hægt að lesa þá gagnrýni hérna. Ég fór frekar góðum orðum um leikinn og hafði mjög gaman að eyða vel yfir 100 tímum að spila leikinn þegar að hann kom út. Einkunn mín var kannski…
Nioh 3 náði nýlega þeim áfanga að hafa selst í yfir milljón eintökum og Nioh leikirnir sem heild yfir 10 milljón eintak en Nioh 3 er sá sem hefur verið að seljast sem hraðast í seríunni. Fyrir þá sem ekki þekkja þá eru Nioh leikirnir hasar-RPG-leikir með mikið af „loot“ þar sem maður er nánast stanslaust að berjast við heri af yfirnáttúrulegum verum af ýmsum stærðum og gerðum sem sækja uppruna sinn í japanska goðafræði. Hægt er að nota ýmsa bardagastíla og marg konar vopn. Sagan hefur alltaf verið aukaatriði í þessum leikjum en fyrir þá sem vilja kafa í…
Indíleikurinn Cairn er þróaður og gefinn út af franska leikjafyrirtækinu The Game Bakers sem gerðu einnig Furi (2016) og Haven (2020). Markmiðið í Cairn er ljóst strax í upphafi; að klífa og komast upp á topp Kami fjallsins, eitthvað sem engum hefur tekist hingað til. Eitt skref í einu Cairn er sörvæval klifurleikur. Stjórnun leiksins minnir svolítið á Baby Steps (2025) og Octodad (2010) þar sem þú hreyfir einn útlim í einu á fjallgöngukonunni Aava, sem er aðalpersóna leiksins. Nauðsynlegt er að ná góðu gripi og halda jafnvægi í fjallaklettunum og vinna sig þannig hægt og rólega upp fjallið. Þú…
Echoes of the End var í þróun í tæpan áratug og er jafnframt frumraun íslenska leikjafyrirtækisins Myrkur Games. Leikurinn flokkast sem þriðju persónu hasar- og ævintýraleikur og er gefinn út af Deep Silver sem hefur gefið út leiki á borð við Kingdom Comes: Deliverance II, Dead Island 2 og Saint’s Row. Echoes of the End kom út á stafrænu formi 12. ágúst í fyrra á PC (Steam), PlayStation 5 og Xbox Series S|X. Í lok október var gefin út endurbætt útgáfa af leiknum sem kallast Enhanced Edition og miðast þessi rýni við þá útgáfu á PlayStation 5. Ævintýrið hefst Í…
Í Wanderstop er ekki verið að biðja spilarann um að verða betri. Ekki hraðari, ekki skilvirkari, ekki stöðugt að fínstilla sjálfan sig eða fullkomna rútínuna. Þvert á móti spyr leikurinn hvað gerist þegar þú getur ekki lengur haldið áfram jafnvel þó þú viljir það meira en nokkuð annað. Leikurinn vinnur markvisst gegn væntingum spilara sem eru vanir skýrri framvindu, umbunarkerfum og stöðugum framförum. Wanderstop setur tóninn snemma: hér er ekki verið að keppa, heldur að vera. Alta er kynnt sem persóna sem hefur byggt sjálfsmynd sína á árangri, aga og stöðugri sjálfsfórn. Hún er vön því að skilgreina eigið gildi…
From the Ashes er þriðja viðbótin við Avatar: Frontiers of Pandora leik Massive Entertainment og útgefandans Ubisoft. Leikurinn kom út í desember 2023 og fékk tvo aukapakka 2024. Núna tæpu ári síðar og þegar að þriðja Avatar kvikmyndin Avatar: Fire and Ash er í kvikmyndahúsum, kemur ný viðbót við leikinn sem tengist myndinni. Í þessari nýju viðbót sem gerist ári eftir atburði grunnleiksins, árið 2170 sen er sama ár og nýja Avatar myndin gerist. Nýr og hættulegur ættbálkur, Ash klanið, hefur komið fram á sögusviðið og eru þeir alger andstæða við flesta Na‘vi ættbálka plánetunnar Pandoru. Þessi her hefur snúið…
Í leiknum Winter Burrow fer spilarinn í gervi lítils músarunga sem flytur aftur heim í sveitina sem hann fæddist í eftir að hafa misst foreldra sína. Músarunginn flytur aftur í sama hola tré og hann bjó í áður fyrr og þarf að koma sér þar fyrir, enda enginn búið þar lengi. Til að halda á sér hita þarf hann að kveikja eld í arninum og til þess að geta sofið þarf hann að smíða sér rúm, og til þess þarf hann eldivið. Banvænn kuldi Leikurinn gerist um hávetur og er því allt þakið snjó. Þrátt fyrr að músarunginn sé ekki…
Það eru liðin rétt um tvö ár síðan ég skrifaði um síðasta Football Manager leikinn hérna á Nörd Norðursins. Þá hafði Football Manager 2024 nýlega komið út og var að mínu mati einn sá besti í seríunni hingað til. Árið eftir það átti Football Manager 25 að koma út og verða ein stærsta breytingin á seríunni síðan að við fengum 3D grafíkvélina í leiknum með tilkomu FM 2009. Unity grafíkvélin var lykilbreytingin fyrir seríuna og átti að verða grunnurinn að næstu tuttugu árum fyrir leikjaseríu Sports Interactive og útgefandans SEGA. Rauninn varð þó önnur og eftir ótal seinkanir og vandræði…
Anno 117: Pax Romana er nýjasti leikurinn í byggingar- og herkænskuseríunni Anno frá Ubisoft og er fáanlegur á PC, PlayStation 5 og Xbox Series X/S vélunum. Anno serían byrjaði árið 1998 með leiknum Anno 1602 og er nýjasti leikurinn sá áttundi í seríunni. Hingað til hefur serían lengst af verið eingöngu fáanleg á PC tölvum en árið 2023 varð breyting á því með útgáfu Anno 1800 sem kom einnig út á leikjavélar Sony og Microsoft. Leikurinn hafði komið út fyrir PC fjórum árum áður. Anno 177: Pax Romana mun komaút 13. nóvember á PC, PlayStation 5 og Xbox Series X/S.…