Author: Nörd Norðursins

Birt af ritstjórn

Við hjá Nörd Norðursins höfum reglulega birt myndir og myndbönd af flottum búningaleikja (cosplay) búningum, t.d. hér, hér og hér, auk þess sem við sáum nokkra flotta búninga þegar við heimsóttum MCM Expo London Comic Con og London Film & Comic-Con í London í fyrra. Í þessu myndbandið er skyggnst inn í heim búningaleikja og spjallað við þær Jessie Pridemore, Ginny Mcqueen og Shea Standefer sem allar tilheyra þessum skemmtilega og ævintýrilega heimi. Í myndbandinu minnast þær einnig á „Damsel in Distress“ og bendum við áhugasömum á þennan þátt í vefseríunni Tropes vs Women in Video Games. -BÞJ

Lesa meira

Föstudaginn 31. maí verður nörda barsvar (pub-quiz) haldið á Litlu Gulu Hænunni, Laugavegi 22. Barsvarið byrjar kl. 21:00 og er miðast við að þrír (eða fleiri) séu saman í liði og verða einhverjir vinnigar í boði fyrir sigurliðið. Nú er ekkert annað að gera en að hefja upphitun og draga sem flesta nörda með sér á viðburðinn! Nánari upplýsingar má finna á viðburðinum á Facebook. -BÞJ

Lesa meira

Árið 2011 náði hópur Robocop aðdáenda að safna vel yfir $60,000 til þess að reisa styttu af hetju Detroit borgar; vélmennalöggunni Robocop úr samnefndum kvikmyndum. Undanfarin tvö ár hefur verkefnið verið í vinnslu og nú styttist í að þessi þriggja metra háa stytta af vélmenninu fræga verði tilbúin. Búist er við því að styttan verði reist í Detroit borg í Bandaríkjunum sumarið 2014. Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan verður styttan ansi vígaleg. Til gamans má geta að Reykjavíkurbúar eiga einnig von á nördalegri styttu í boði CCP. Fleiri myndir má finna hér á…

Lesa meira

Breski leikarinn Christopher Lee á heldur betur glæstan feril að baki. Hann hóf leikferil sinn á fimmta áratugnum og var þá á þrítugsaldri. Síðan þá hefur hann meðal annars farið eftirminnilega með hlutverk Drakúla í Hammer-hrollvekjunum, Count Dooku í Star Wars og Saruman í Lord of the Rings. Christopher Lee hélt í gær upp á 91 ára afmælið sitt (fæddur 27. maí 1922) með því að gefa út þungarokksplötuna Charlemagne: The Omens of Death sem er framhald plötunnar Charlemagne: By the Sword and the Cross sem kom út árið 2010. Hér fyrir ofan fjallar Christopher um nýju plötuna og leyfir okkur að heyra valda lagabúta.…

Lesa meira

Þegar ofurhetjur eru að berjast við óvini sína getur stundum komið fyrir að bílar skemmist, byggingar eyðileggjast eða allt fer hreinlega í rúst eftir átökin. En hvað gerist eftir það? Ekki kemur þrumuguðinn Þór, Kapteinn Ameríka eða Kóngulóarmaðurinn seinna og tekur til eftir sig. Ekki er hægt að láta vondu kallanna gera það, þeir myndi líklegast ekki gera mikið gagn. Þess vegna var fyrirtækið Damage Control stofnað, til þess að taka til og byggja upp eftir svona átök. Starfsmenn Damage Control voru fyrst kynntir fyrir lesendum árið 1988 í Marvel Age Annual og komu síðan ári seinni í myndasögunum Marvel…

Lesa meira

Íslenska myndasögublaðið (Gisp!) snýr aftur eftir langt hlé. (Gisp!) á sér 22 ára sögu og er nýjasta blaðið það 11. í seríunni, en mislangt hefur liðið milli blaða í gegnum tíðina. Að þessu sinni er að finna spennandi sögur og myndlist eftir Bjarna Hinriksson, Halldór Baldursson, Jóhann Ludwig Torfason og Þorra Hringsson. Einnig eru gestirnir Sigga Björg Sigurðardóttir, Hugleikur Dagsson, Lilja Hlín Pétursdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir með krassandi efni í blaðinu. Blaðið er prentað í aðeins 300 eintökum verður hægt að nálgast eintak á sýningunni Þrautir til 9. júní, í Útúrdúr á Hverfisgötu og Nexus. Við bendum áhugasömum á þetta viðtal á RÚV sem…

Lesa meira

Hver hefur ekki spurt sig hvernig væri umhorfs ef Superman væri til? Hvernig heimurinn myndi bregðast við ef Batman myndi birtast skyndilega? Hvernig myndum við bregðast við ef galdrar, geimverur og ofurmenni yrðu hluti af lífi okkar, hvernig myndi sagan breytast? Margar seríur hafa komið fram á sjónarsviðið á síðustu áratugum sem reyna að útskýra hver áhrif ofurhetja yrðu, með misjöfnum árangri. Stundum eru hetjurnar tvöfaldar í roðinu, stundum hafa þær krafta, stundum ekki. Hérna getur að líta fjórar markverðustu tilraunir síðustu ára. Rising Stars J. Michael Straczynski hefur margt til brunns að bera annað en erfitt eftirnafn. Hann…

Lesa meira

Úlfshjarta er ný bók í útgáfu JPV. Stefán Máni er Íslendingum kunnur fyrir skuggalegar og oft hryllingslegar skáldsögur sínar en söðlar um í Úlfshjarta og er kominn á unglingabókamarkaðinn með sína túlkun á vinsælu sagnaminni, varúlfinum. Úlfshjarta segir frá Alexander, ungum manni sem gafst upp á Menntaskólanum og er farinn að vinna við útkeyrslu á kóki. Hann er eins og margir á hans aldri týndur og ráðvilltur, veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, hver hann er eða hver hann vill vera. Skyndilega finnur Alexander breytingar á líkamlegu og andlegu atgervi sínu og uppgötvar að hann er varúlfur og…

Lesa meira

Gleðilegan föstudag kæru nördar, nær og fjær! Á föstudögum hitum við upp fyrir helgina með því að birta syrpu af nokkrum vel völdum myndböndum. Xbox One kynningin í hnotskurn Beer of Thrones – villtur partíbjór! Furðulega öðruvísi Windows 8 auglýsing Betra að fá sér nokkra Beer of Thrones áður en þetta spil byrjar! Snillingarnir í Wizards (aka Workaholics) flytja lagið Straight Outta Mordor Bjarnar-bíla-og-veiði-hermirinn: Enviro-Bear 2000! – BÞJ

Lesa meira

Á seinustu árum hefur áhugi á Esports og annari keppnishæfri tölvuleikjaspilun stóraukist. Milljónir manna víðsvegar um heiminn spila tölvuleiki ekki aðeins til afþreyingar, heldur einnig til að bæta spilun sína og til að keppa í deildum, riðlum og mótum sem eru smíðuð utan um marga fjölspilunarleiki í dag. Í kjölfar þessarar þróunar hefur einnig sprottið upp mikill áhugi á áhorfi fjölspilunarleikja. Á hverjum degi fylgjast hundruðir þúsunda með sínum uppáhalds spilurum spila í gegnum beinar netstraums (Live Stream) útsendingar, þar sem tölvuleikir á borð við League of Legends, Starcraft 2, DotA 2 og World of Warcraft eru hvað veigamestir. Þessi…

Lesa meira