Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Fréttir1»Photoshop Wars: Stríð í myndvinnslu
    Fréttir1

    Photoshop Wars: Stríð í myndvinnslu

    Höf. Nörd Norðursins23. ágúst 2012Uppfært:26. ágúst 2012Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Photoshop Wars er vefsíða og Facebook leikur þar sem að notendur breyta myndum í myndvinnsluforriti og keppa um atkvæði á vefnum. Á bak við hugmyndina standa tveir 25 ára piltar frá Reykjanesbæ, þeir Arnar Stefánsson og Ívar Rafn Þórarinsson. Arnar útskrifaðist úr Margmiðlunarskólanum og stofnaði auglýsingastofu ásamt tveimur öðrum. Þar starfaði hann í tæpt ár og Ívar er með 4 ára reynslu í vefforritun og hönnun.

    Hvernig Photoshop Wars virkar

    Einn notandi byrjar á því að búa til „stríð“ (keppni) og velur umfangsefni. Umfangsefnið getur verið textalýsing og/eða ein ákveðin mynd sem notendur þurfa svo að vinna í myndvinnsluforriti á borð við Photoshop. Þegar notandinn hefur stofnað stríð getur hann skorað á Facebook-vini sína eða aðra notendur vefsins til þess að taka þátt í stríðinu.

    Þegar að báðir þáttakendur stríðsins hafa sent inn sínar myndir er stríðið birt og hefst þá kosning á vefsvæði Photoshop Wars um það hvor myndin sé fyndnari eða flottari.

    Til að færa spennu og gildi í leikinn var ákveðið að bæta við stöðugildum (ranking system) notenda Photoshop Wars, þar sem að notendur þurfa að safna reynslustigum til að hækka um stöðu, en þetta kerfi ættu margir að þekkja t.d. úr fyrstu persónu skotleikjum.
    Einnig eiga notendur möguleika á að vinna medalíur fyrir ýmis afrek.

    Það er ekki þörf á að vera Photoshop snillingur til þess að taka þátt. Með því að kjósa stríð, deila, skoða og bæta við athugasemdum er hægt að taka þátt í Photoshop Wars og um leið öðlast reynslustig.

    Stefnt er á að opna fyrir Beta-prufuaðgang á næstu vikum.

    Hægt er að styrkja verkefnið í gegnum Indiegogo með því að smella hér.

    – AS / BÞJ

    Arnar Stefánsson Facebook Ívar Rafn Þórarinsson myndvinnsla Photoshop Wars
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaNörd Norðursins óskar eftir snillingum!
    Næsta færsla Miðasala hafin á Star Wars tónleika
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026

    CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl

    21. apríl 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026
    Leikjarýni
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.
    • Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí
    • Ókeypis myndasögudagurinn í dag!
    • Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam
    • Walk of Life kominn út!
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.