Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Greinar»Saga leikjatölvunnar, 4. hluti (2009 – 2011)
    Greinar

    Saga leikjatölvunnar, 4. hluti (2009 – 2011)

    Höf. Nörd Norðursins15. ágúst 2011Uppfært:25. maí 2013Engar athugasemdir4 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    eftir Bjarka Þór Jónsson

    Smelltu hér til að lesa 3. hluta.
    Nintendo hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum með Wii leikjatölvunni og handheldu leikjatölvunni Nintendo DS. Samkvæmt tölum VGChartz hafa þessar tvær tölvur selst í lang flestum eintökum af sjöundu kynslóð leikjatölva, hvor á sínu sviði. Tölvunar tvær frá Nintendo hafa þó ekki náð að heilla harðkjarna spilara í Evrópu og Bandaríkjunum. Helsta orsök þess er að líkindum lakari grafík en er í öðrum leikjatölvum og leikjaúrvalið, sem höfðar fyrst og fremst til krakka, fjölskyldna og Asíu markaðinn. Enginn hefur þó náð sölumeti best seldu leikjatölvunnar, PS2, sem hefur selst í yfir 150 milljón eintökum.

    Nintendo hefur verið það tölvuleikjafyrirtæki sem hefur verið hvað ófeimnast við að prófa nýja hluti á sviði leikjatölva og tölvuleikja í gegnum tíðina. Microsoft og Sony fetuðu í fótsport Nintendo og hafa  gefið út aukahluti sem opna fyrir hreyfistýringar í leikjatölvunum; Sony með PlayStation Move (PSM) fyrir PlayStation 3 (PS3) og Microsoft með Kinect fyrir Xbox 360.

    Fjarstýring PSM líkist Wii fjarstýringunni, fyrir utan það að hún er svört og með kúlu á endanum sem getur breytt um lit. PSM notar PlayStation Eye (PSE) myndavélina til að skynja hreyfingar fjarstýringarinnar. Leikirnir sem notast við PSM styðjast ýmist við tæknina að hluta til eða eru eingöngu ætlaðir PSM.

    Kinect er frábrugðið Wii og PSM að því leiti að þar er engin fjarstýring notuð, heldur notar spilarinn líkama sinn til að stjórna. Til dæmis ef það eru spilaðir dansleikir í Wii eða PS3  er nauðsynlegt fyrir spilara að halda á fjarstýringu(m) sem skynja hreyfingarnar. Í Kinect eru engar fjarstýringar og þess vegna er nóg fyrir spilara að dansa fyrir framan Kinect hreyfiskynjarann án nokkurra hjálparhluta. Kinect og PSM komu á markaðinn á svipuðum tíma, eða seinni hluta 2010. Til þessa hafa tæplega 9 milljón eintök selst af PSM, en yfir 10 milljón eintök af Kinect. Kinect sló heimsmet í hröðustu sölu á raftæki fyrir neytendur þar sem 8 milljón eintök seldust á fyrstu 60 dögunum.

    Svo virðist vera að leikir sem styðjast við hreyfistýringar hafa fyrst og fremst slegið í gegn hjá krökkum, fjölskyldum, í partýum og hjá þeim sem spila sjaldan tölvuleiki. Þeir sem spila tölvuleiki oft og mikið hafa ekki sótt eins mikið í leiki sem bjóða upp á hreyfispilun, en það mun mögulega breytast í kjölfar þess að Sony og Microsoft ætla að leggja aukna áherslu á hreyfispilum. En nánar um það í E3 greininni hér á eftir.

    Fleiri leikir eru farnir að bjóða upp á þrívíddarmöguleika, og þá fyrst og fremst leikir í PS3 og Nintendo 3DS. Í PS3 leikjunum er nauðsynlegt að eiga sjónvarp sem styður þrívíddarmöguleika og verður spilarinn að setja á sig sérstök þrívíddargleraugu, líkt og tíðkast þegar horft er á kvikmynd í þrívídd. Nintendo 3DS fer aðra leið og birtir myndir í þrívídd án sérstakra gleraugna, en það er nauðsynlegt fyrir spilarann að horfa beint á skjáinn svo að þrívíddin birtist rétt. Þrívídd án gleraugna hljómar ansi vel en hópur spilara hefur nú þegar kvartað yfir því að fá höfuðverk við að spila leiki í 3D í 3DS, en það er hægt að stilla hvort leikirnir birtist í 2D eða 3D. Einnig er ekki mælta með því að börn yngri en 6 ára spili leikina í 3DS þar sem það getur mögulega skaðað sjónina.

    Leikjatölvur og tölvuleikir í dag bjóða upp á ansi margt; góða grafík, hraða vinnslu, hreyfi- og raddstýringar, netspilun og oftar en ekki er hægt að hlusta á tónlist, horfa á kvikmyndir eða sækja leikling (e. demo) af netinu. Wii, PS3 og Xbox 360 eru stóru leikjatölvunar í dag og flokkast sem sjöunda kynslóð leikjatölva. Tímabil áttunda kynslóðarinnar er nú þegar hafið. Nintendo 3DS var fyrsta handhelda leikjatölva áttundu kynslóðarinnar og mun handhelda leikjatölvan frá Sony, PlayStation Vita, og nýja leikjatölvan frá Nintendo, Wii U, einnig falla í sama flokkinn. Framtíð leikjatölvunnar snýst ekki einungis um flottari grafík og betra hljóð í tölvuleikjum, heldur eru leikjatölvurnar orðnar að afþreyingarmiðstöð heimilisins. Auk þess sem að tækin eru farin að tvinna sig saman í eina heild, til dæmis getur spilarinn verið að spila tölvuleik í gegnum PS3 leikjatölvuna við vin sem spilar leikinn í PC tölvu, eða spilað tölvuleik í handheldri leikjatölvu og haldið svo áfram að spila þar sem frá var horfið í leikjatölvunni við sjónvarpsskjáinn.

    2009 2011 3d 3ds Bjarki Þór Jónsson hluti leikjatölva microsoft nintendo playstation ps3 psp saga Saga leikjatölvunnar sony vita wii wii u xbox360
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaSaga leikjatölvunnar, 3. hluti (1994 – 2008)
    Næsta færsla Að læra er leikur einn
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag

    5. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025

    Leikjafyrirtækin á Íslandi aldrei fleiri en nú

    19. nóvember 2025

    Leikjavarpið #62 – Steam Machine og GTA VI seinkað

    17. nóvember 2025
    Nýtt á Nörd Norðursins

    VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag

    5. desember 2025

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.