Fréttir

Birt þann 15. ágúst, 2011 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Mortal Kombat meistarmót

Í tilefni þess að nýr Mortal Kombat leikur kom út blésu Next Gen News og SamFilm til meistaramóts í honum. Sigurvegari keppninnar fór ekki tómhentur heim þar sem eintak af Mortal Kombat Kollectors Edition var í verðlaun.

Leikmenn þurftu sérstaklega að sækja um þátttöku á mótinu fyrir 15. apríl og þurftu að staðfesta 18 ára aldur. Hópnum var svo skipt í tvennt; einn hópurinn keppti í PlayStation 3 útgáfu leiksins og hinn í Xbox 360 útgáfunni. Sigurvegarar hópanna mættust svo í úrslitaleik og var kastað upp á hvora leikjavélina úrslitaleikurinn væri spilaður.

Reglur leiksins voru þessar:
1. Keppendur mega spila eins marga prufuleiki og þeir vilja þar til keppnin hefst.
2. Um leið og keppandi er sigraður er hann úr leik.
3. Next Gen News hefur rétt á því að dæma svindlarar og hakkara úr leik.
4. Next Gen News hefur rétt á því að velja deild keppanda.
5. Next Gen News hefur rétt á því að velja leikjavél til að spila úrslitaleikinn.
6. Next Gen News hefur rétt á því að breyta um verðlaun sem eru jafn verðmæt eða verðmætari.
7. Next Gen News bera ekki ábyrgð á skemmdum sem verðlaunin kunna að hljóta til og frá keppnisstað.
8. Next Gen News hefur rétt á því að neita umsókn keppanda í meistaramótið.

Fyrstu verðlaun: Mortal Kombat Kollectors Edition og 8 Red Bull.
Önnur verðlaun: Matur fyrir tvo á Gamla Vínhúsinu.

Áður en keppnin hófst formlega fengu spilarar að prófa leikinn og hita upp fyrir sjálft mótið. Það var vel mætt á keppnina sem var æsispennandi og stóð yfir í um klukkustund. Í lokin voru það Hlíðar og Andri Snær sem slógust um fyrsta sætið. Hlíðar spilaði sem Smoke og Andri Snær valdi Scorpion. Þeir þurftu að taka þrjá úrslitaleiki; einn í PlayStation 3, einn í Xbox 360, og svo var kastað upp á hvora tölvuna síðasti bardaginn færi fram, og Xbox 360 varð fyrir valinu.

Úrslitin lágu fyrir eftir æsispennandi lokaleik, Andri Snær er íslenski Mortal Kombat meistarinn!!

Til gamans má geta að Andri keypti PlayStation 3 leikjavél sérstaklega til að spila leiklinginn (e. demo) af Mortal Kombat, en leiklingurinn hefur aðeins verið fáanlegur í PS3.

 

Úrslitaleikurinn í Mortal Kombat meistaramótinu! Andri Snær (Scorpion) VS Hlíðar (Smoke):

– BÞJ

Deila efni

Tögg: , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Skildu eftir svar

Efst upp ↑