Elko ætlar, í samstarfi við Senu og Pepsi, að halda útgáfupartý fimmtudaginn 12. nóvember í tilefni af útgáfu Grand Theft Auto VI. Leikurinn sjálfur kemur þó ekki út fyrr en viku síðar, eða fimmtudaginn 19. nóvember.
Kvöldopnunin fer fram í Elko í Lindum á milli kl. 20 og 22. Viðskiptavinir sem hafa forpantað GTA VI geta þá sótt kaup sín. Þess má þó geta að leikurinn verður ekki gefinn út á diskum heldur fylgir stafrænn niðurhalskóði með kaupunum sem spilarar þurfa að innleysa í leikjatölvunni sinni áður en hægt er að hlaða leiknum niður. Einnig verður hægt að kaupa leikinn á staðnum á meðan birgðir endast.
Ýmislegt verður á kvöldviðburðinum. Lukkuhjól verður í boði með vinningum, glaðningar fylgja öllum seldum leikjum og sérstök tilboð verða á völdum PlayStation-vörum. Við heyrðum í Arinbirni sem starfar í markaðsdeild Elko og spurðum nánar út í þá glaðninga sem í boði verða. Arinbjörn segir að verslunin í Lindum verði skreytt í GTA-þema og að Pepsi og Doritos muni fylgja öllum seldum leikjum. Þá verður lukkuhjól á staðnum og sérstök selfí-uppsetning fyrir gesti. Tveir heppnir viðskiptavinir sem kaupa leikinn í forsölu eiga auk þess möguleika á að vinna PlayStation 5 Pro leikjatölvu.
Tveir heppnir viðskiptavinir sem kaupa leikinn í forsölu eiga auk þess möguleika á að vinna PlayStation 5 Pro leikjatölvu.
Kvöldopnanir vegna leikjaútgáfa hefur fækkað mikið frá því sem áður var. Þegar leikir voru nær eingöngu gefnir út á diskum voru verslanir gjarnan með sérstakar kvöld- eða miðnæturopnanir þar sem góð stemning myndaðist og ýmsar uppákomur voru skipulagðar. Eftir að tölvuleikir færðu sig nánast algjörlega yfir á stafrænt form má segja að slíkar uppákomur séu orðnar algjör undantekning. Það er því ekki úr vegi að velta fyrir sér hvort þetta sé jafnvel síðasti kvöldviðburður sinnar tegundar vegna leikjaútgáfu hér á landi.
Skoða viðburð á Facebook.
Mynd: Elko á Facebook
