Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»GTA 6 forpantanir hefjast í næstu viku
    Fréttir

    GTA 6 forpantanir hefjast í næstu viku

    Höf. Sveinn A. Gunnarsson19. júní 2026Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Rockstar Games og útgefandinn 2K Games hafa staðfest að forpantanir fyrir Grand Theft Auto VI munu hefjast í næstu viku, nánar þann 25. Júní næstkomandi. Hægt er að setja leikinn á óskalistann nú þegar á PlayStation og Xbox búðunum til að undirbúa sig. 

    Leikurinn á að koma út 19. Nóvember fyrir PlayStation 5 og Xbox Series X|S leikjavélarnar. PC útgáfa af leiknum er áætluð á næsta ári eins og var með GTA V. 

    Það sem kom ekki fram var hvaða útgáfur af leiknum verða í boði og auðvitað hvað leikurinn muni kosta. En við fengum að sjá kápu leiksins, sem má sjá hérna fyrir neðan.

    Verð leiksins er eitthvað sem mikið hefur verið spáð í og veðja margir að leikurinn geti verið í dýrari kantinum.

    Það er orðið langt síðan að GTA V kom út (í fyrsta skiptið), 17 september 2013 á PlayStation 3 og Xbox 360. Leikurinn hefur síðan fengið útgáfur á PS4/Xbox One og PS5 og Xbox Series X|S vélarnar ásamt PC. Í mars á þessu ári var staðfest að leikurinn hafi selt í tæplega 230 Milljón eintökum á heimsvísu á öllum þeim stöðum þar sem hann er fáanlegur í dag. 

    Eftirvæntingarnar til GTA VI eru gríðarlegar og hafa tölvuleikir verið duglegir að færa útgáfudaga sína frá nóvember mánuði. Búist er við að þetta verði eins stærsta tölvuleikja útgáfa ársins og leikurinn muni seljast í tug miljóna eintaka á fyrst árinu.

    Í öðrum GTA tengdum fréttum þá geta eigendur GTA V á PS4 og Xbox One fengið fría uppfærslu á leikinn yfir á PS5 og Xbox Series X|S í tilefni nýrrar uppfærslu fyrir GTA Online sem á að koma út í næsta mánuði. 

    Heimild: Rockstar Games

    gta GTA 6 GTA VI PS5 PS5 Pro Rockstar Games Xbox Series X|S
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaIsle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.
    Sveinn A. Gunnarsson

    Svipaðar færslur

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026

    CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl

    21. apríl 2026

    Ubisoft opinberar loksins AC Black Flag Resynced

    21. apríl 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    GTA 6 forpantanir hefjast í næstu viku

    19. júní 2026

    Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.

    23. maí 2026

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026
    Leikjarýni
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • GTA 6 forpantanir hefjast í næstu viku
    • Isle of Games tölvuleikjaveisla í Bíó Paradís 23.-24. maí.
    • Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí
    • Ókeypis myndasögudagurinn í dag!
    • Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.