Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Leikjarýni»Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    Leikjarýni

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    Höf. Bjarki Þór Jónsson8. mars 2026Uppfært:8. mars 2026Engar athugasemdir4 mín. lestur
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Indíleikurinn Cairn er þróaður og gefinn út af franska leikjafyrirtækinu The Game Bakers sem gerðu einnig Furi (2016) og Haven (2020). Markmiðið í Cairn er ljóst strax í upphafi; að klífa og komast upp á topp Kami fjallsins, eitthvað sem engum hefur tekist hingað til.

    Eitt skref í einu

    Cairn er sörvæval klifurleikur. Stjórnun leiksins minnir svolítið á Baby Steps (2025) og Octodad (2010) þar sem þú hreyfir einn útlim í einu á fjallgöngukonunni Aava, sem er aðalpersóna leiksins. Nauðsynlegt er að ná góðu gripi og halda jafnvægi í fjallaklettunum og vinna sig þannig hægt og rólega upp fjallið. Þú teygir hægri höndina til að ná taki á lítilli sillu og í kjölfarið færir þú vinstri fótin í mjóaa sprungu. Eitt skref í einu. Að renna til og missa takið getur reynst dýrkeypt. Í besta falli byrjar þú aftur á upphafsreit þar sem fjallakletturinn rís upp, í versta falli – deyrðu!

    Aava getur borað króka í fjallið og fest öryggiskaðal við þá, slíkt má líta á sem einskonar vistun á staðsetningu þar sem krókurinn heldur Aavu öruggri frá frekara falli. Þegar fjallshlíðarnar verða mjög brattar og veggirnir háir er nauðsynlegt að skoða sig um og skipuleggja hvar og hvenær er skynsamlegt að festa krókana þar sem Aava er með takmarkað magn af þeim.

    Erfitt og persónulegt klifur

    Í þessu langa og hættulega ferðalagi fáum við að kynnast Aava betur, hennar lífi og hennar tilfinningum. Við fáum tækifæri til að tengjast henni og skilja hana aðeins betur. Cairn er nánast eingöngu klifurleikur en það tvinnast þó nokkuð áhugaverð saga við leikinn sem nær að gera leikinn aðeins persónulegri.

    Huga þarf að ýmsu á meðan á fjallaklifrinu stendur, þar á meðal heilsu, hungri, þorsta og kulda.

    Huga þarf að ýmsu á meðan á fjallaklifrinu stendur, þar á meðal heilsu, hungri, þorsta og kulda. Mikilvægt er að hvílast vel til að endurnæra sig og elda orkuríkan mat af ýmsu sem þú finnur í umhverfinu, eins og egg, geitamjólk, vatn og jurtir. Þessir þættir gera ferðalagið enn erfiðara og flóknara. Blessunarlega býður leikurinn upp á stillingu fyrir þá spilara sem vilja eingöngu fókusa á fjallaklifrið. Auk þess er hægt að kveikja á stillingu sem leyfir spilaranum að spóla aftur í tímann, með þeim hætti er hægt að hætta við að klifra leiðir sem eru áberandi erfiðar eða bjarga Aavu ef hún dettur niður. Cairn er hannaður með það í huga að vera erfiður þar sem það á að vera erfitt að klífa fjallið, en þessar stillingar opna leikinn fyrir auðveldari spilunaraðferð sem er þó þrátt fyrir það frekar krefjandi. Ég kveikti á þessum stillingum þegar ég var kominn u.þ.b. hálfa leið upp fjallið og sá ekki eftir því.

    Með lífið í lúkunum

    Leikurinn byrjar á heldur auðveldum hindrunum og köflum þar sem áhættan er ekki of mikil. Með tímanum eykst áhættan og mikilvægt að skoða umhverfið vel og velja vel hvert skal halda. Leikurinn nær ágætis gripi á manni frekar snemma en eftir nokkra klukkutíma af spilun þá fyrst nær leikurinn þéttu haldi á manni. Þá fyrst vildi ég komast á toppinn jafn mikið og Aava. Í seinni hluta leiksins hélt ég ítrekað niðri í mér andanum af hreinum spenningi. Næ ég að komast á næstu sillu? Er líkamsstaðan nægilega góð til að halda jafnvægi? Valdi ég rétta leið eða þarf ég að klifra til baka?

    Í seinni hluta leiksins hélt ég ítrekað niðri í mér andanum af hreinum spenningi. Næ ég að komast á næstu sillu? Er líkamsstaðan nægilega góð til að halda jafnvægi? Valdi ég rétta leið eða þarf ég að klifra til baka?

    Þó svo að spilunin sjálf sé mjög róleg, þ.e.a.s. að spilarinn stjórnar aðeins einum útlim í einu, þá er leikjaupplifunin mjög spennandi. Það tók mig yfir 16 klukkutíma að komast á toppinn og það tók á get ég sagt ykkur. Reglulega þurfti ég að leggja fjarstýringuna frá mér og taka stutta pása frá leiknum til að safna andlegri orku. Það er hægt að sækja demó af leiknum til að prófa sem ég mæli með að gera fyrir kaupin sjálf. Leikurinn reynir mikið á þolinmæði og skipulag og á klárlega erindi til þeirra sem hafa gaman af krefjandi leikjum.

    Helstu ókostir leiksins eru furðulegar hreyfingar hjá Aavu þar sem hún getur hreyft sig á ómennskan hátt, sem hjálpar stundum til við að komast á erfiða staði en passa ekki alveg við andrúmsloft leiksins. Einnig komu upp gallar þar sem örugg svæði voru ekki örugg, t.d. svæði sem Aava ætti auðveldlega að geta gripið í eða staðið á en þess í stað dettur hún þá niður eða missir jafnvægið. Þessi galli getur sett Aavu hratt í mjög hættulega stöðu sem getur verið gríðarlega pirrandi og ósanngjarnt ef það endar til dæmis með dauða í leiknum.

    Cairn

    7.7 Krefjandi

    Skemmtilega óhefðbundinn indí-leikur sem reynir verulega á þolinmæði og þrautseigju. Grafíkstíllinn er einfaldur og grípandi og það sama má segja um spilun leiksins. Leikurinn hentar þeim best sem elska krefjandi leiki

    Það góða
    1. Sérstakt og óhefðbundið viðfangsefni
    2. Áhugaverð spilun
    3. Krefjandi - á góðan hátt
    Það slæma
    1. Hreyfigeta Aavu stundum sérkennileg
    2. Nokkrir gallar sem geta kostað þig tíma
    • Einkunn lesenda (0 atkvæði) 0
    Cairn fjallaklifur klifra Survival The Game Bakers
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaMario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026

    Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3

    16. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026

    Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik

    14. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.