Það styttist í að haldið verði upp á Mario-daginn – Mar10 Day – sem er fagnað 10. mars ár hvert. Dagurinn er tileinkaður Mario, einni frægustu tölvuleikjapersónu sögunnar, sem hefur glatt hjörtu spilara á öllum aldri undanfarin 40 ár. Nintendo mun bjóða upp á afslátt af völdum Mario-leikjum á eShop netverslun sinni en einnig verður boðið upp á sérstaka dagskrá á Next Level Gaming í tilefni dagsins. Þar verður hægt að keppa í Mario Kart, spila bingó þar sem aðalvinningurinn er Switch 2 tölva, njóta Mario djasstónleika og margt fleira.
Hér fyrir neðan er að finna dagskrána í held sinni sem stendur yfir 10.-15. mars. Til að fá nýjustu tilkynningar er best að fylgjast með viðburðinum á Facebook, þar er einnig að finna upplýsingar um hvernig á að skrá sig til leiks í Mario Kart og Super Smash Bros. mótin.
| Dagskrá Mario Con 2026 |
|---|
| Þriðjudagurinn 10. mars – fimmtudagurinn 12. mars |
| Mar10 daga sértilboð: 50% afsláttur af spilun á Nintendo tölvum og Ormsson VIP herberginu. Í boði að spila Mario Kart með alvöru stýrum. |
| Föstudagurinn 13. mars |
| Í boði að spila frítt á klassískum Nintendo tölvum allan daginn. 18:45 – 19:45 Lifandi djass – Frír aðgangur (panta þarf sæti með tölvupósti) 20:00 – 21:00 Bingó – Aðalvinningur er Nintendo Switch 2 |
| Laugardagurinn 14. mars |
| 12:00 – 16:00 Mario Kart 8 Deluxe mót 15:00 – Mario Kart World barnamót (fyrir 10 ára og yngri) 17:00 – 21:00 Mario Kart World mót Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í mótin og borga þátttökugjald. |
| Sunnudagurinn 15. mars |
| 13:00 – 18:00 Super Smash Bros. mót Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í mótið og borga þátttökugjald. |
Mynd (breytt útgáfa): Mario Con 2026 á Facebook
