Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Íslenskt»StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars
    Íslenskt

    StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars

    Höf. Bjarki Þór Jónsson19. febrúar 2026Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    StarCraft áhugamaðurinn Bjarni Ólafsson og Next Level Gaming efna til sannkallaðrar StarCraft hátíðar í Next Level Gaming Egilshöll laugardaginn 7. mars. Allir áhugasamir StarCraft spilarar eru hvattir til að mæta, sama hvort það sé til að taka þátt í mótinu eða til að prófa leikinn eða einfaldlega hitta aðra spilara.

    Við spurðum Bjarna við hverju spilarar mættu búast á StarCraft hátíðinni. „Aðgangur ókeypis á hátíðinni og að tölvum Next Level Gaming Egilshöll [beint] til StarCraft áhugafólks. Hægt að spila leiki með vinum eða öðrum gestum. Happy hour tilboð verður á barnum fyrir alla StarCraft aðdáendur og einnig verður hægt að panta mat. Þessi viðburður verður hin mesta veisla fyrir alla sem hafa einhvertímann prófað StarCraft eða sambærilega leiki.“

    Fyrir keppnisfólk verður hægt að skrá sig í Íslandsmót í bæði StarCraft 1 og StarCraft 2, þar sem hægt er að vinna til verðlauna. Úrslitaeinvígunum tveimur verður síðan varpað upp í beinni útsendingu á stóra skjávarpann, þar sem lýsendur lýsa leiknum að mynda alvöru rafíþrótta stemningu.

    Bjarni Ólafsson

    „Fyrir keppnisfólk verður hægt að skrá sig í Íslandsmót í bæði StarCraft 1 og StarCraft 2, þar sem hægt er að vinna til verðlauna. Úrslitaeinvígunum tveimur verður síðan varpað upp í beinni útsendingu á stóra skjávarpann, þar sem lýsendur lýsa leiknum að mynda alvöru rafíþrótta stemningu. Svo það verður eitthvað fyrir alla, sama hvort fólk sé byrjendur eða lengra komin, „Bronze league hero“ eða „Grandmaster“.“ Segir Bjarni sem starfar sem sögukennari og er áhugamaður um rafíþróttir og þá sérstaklega herkænskuleiki (RTS).

    „Skulum koma saman og skemmta okkur óháð getustigi og þjálfun. Það eru fáir leikir sem eiga sér jafn ríka sögu og StarCraft serían og því ber að fagna! Sjáumst 7. mars!” bætir Bjarni við að lokum.

    Hér fyrir neðan er að finna dagskrána fyrir viðburðinn en til að fá upplýsingar um mögulegar breytingar eða aðrar upplýsingar er hægt að skoða viðuburðinn á Facebook.

    Dagskrá

    13:00 – StarCraft Brood war 1v1 mót hefst – Keppt verður í tveimur styrkleikaflokkum, Chobos og Gosus sá sem sigrar Gosus verður krýndur Íslandsmeistari. Tölvur einnig opnar fyrir þá sem vilja spila casual.

    16:00 – StarCraft Brood war úrslitaleikur fer fram og honum streymt og lýst á stóra skjánum.

    18:00 – StarCaft II 1v1 mót hefst. – Tölvur einnig opnar fyrir þá sem vilja bara spila casual. Úrslitaleiknum verður streymt og lýst á stóra skjánum. Eftir 1v1 mótið fer af stað casual 2v2 mót fyrir þá sem hafa áhuga.

    Mynd: StarCraft Festival á Facebook

    Bjarni Ólafsson keppni Next Level Gaming rafíþróttir starcraft Starcraft 2
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaEchoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026

    Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik

    14. febrúar 2026

    Leikjalisti dj flugvélar og geimskips

    13. febrúar 2026

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars

    19. febrúar 2026

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026

    Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3

    16. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026

    Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik

    14. febrúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars
    • Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn
    • Leikjavarpið #67 – State of Play og Nioh 3
    • Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale
    • Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.