Þann 10. febrúar var alþjóðlega netöryggisdaginn. Að því tilefni opnaði Netvís, miðstöð um félagslegt netöryggi og miðlalæsi, fjölbreytta verkfærakistu fyrir foreldra þar sem hægt er að nálgast upplýsingar sem snýr að öryggi barna á netinu. Til dæmis er sýnt hvernig hægt er að nota fjölskyldustillinguna í PlayStation leikjatölvunni og sækja fróðleik um Twitch, Discord og fleiri samfélagsmiðla sem foreldrar þekkja misvel.
Í verkfærakistu Netvís er einnig að finna gott og mikið tenglasafn um gagnlegt efni eins og gervigreind, miðlalæsi, hjálparsíma og netspjall fyrir ungmenni og margt fleira. Þrír vinsælir tölvuleikir fá sérstaka kynningarpakka þar sem hægt er að lesa stuttar kynningar á leikjunum á íslensku. Það eru leikirnir Roblox, Fortnite og Clash Royale.
Við hvetjum foreldra til að kynna sér verkfærakistuna sem hægt er að nálgast hér á heimasíðu Netvís.
Mynd (samsett): Netvís (fjarsjóðskista), Fortnite, Roblox og Clash Royale.
