Replay! the Musical er rytmískur söngleikjastefnumótahermir sem er væntanlegur frá Deadgroove Games, nýju íslensku leikjafyrirtæki sem var stofnað í janúar á þessu ári. Tónlistarmaðurinn Viktor Ingi Guðmundsson er skráður sem stjórnarformaður Deadgroove Games og jafnframt leikjastjóri (game director) Replay! the Musical. Viktor starfaði áður sem hljóðstjóri (director of audio) hjá Myrkur Games og samdi meðal annars tónlistina fyrir Echoes of the End.
Og þegar tilfinningarnar eru orðnar of stórar brestur leikurinn út í söng.
Viktor Ingi Guðmundsson, leikjastóri hjá Deadgroove Games
Í gær birti fyrirtækið sitt fyrsta myndband þar sem leikurinn er kynntur í stuttu máli. Þar kemur fram að Replay! the Musical muni bjóða upp á söngleikjaupplifun í söngleikja- og rytmísku leikjaformi þar sem leikmenn fara með aðalhlutverkið. Leikmönnum gefst tækifæri á að kynnast fólkinu í smábænum Seahaven og skapa tengsl við bæjarbúa. „Og þegar tilfinningarnar eru orðnar of stórar brestur leikurinn út í söng.“ segir Viktor Ingi í kynningarmyndbandinu. Sýnt er stutt brot úr spilun leiksins þar sem blandað er saman einkennum sjónrænna skáldsagna (e. visual novels) og rytmískra leikja þar sem leikmaður þarf að ýta á ákveðna takka á réttum tíma til að safna svokölluðum hugrekkisstigum. Þau stig eru svo notuð til að heilla bæjarbúa Seahaven.

Átta manna teymi sem hefur reynslu úr tölvuleikja- og tónlistarheiminum vinnur um þessari mundir að gerð sýnisútgáfu (demo) leiksins í samvinnu við leikara og söngvara. Hægt er að fylgja Deadgroove Games á samfélagsmiðlum en engin heimasíða tileinkuð leiknum hefur verið formlega kynnt. Deadgroove Games er á YouTube, Instagram, Facebook og TikTok.
