Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni
    Fréttir

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    Höf. Bjarki Þór Jónsson2. febrúar 2026Uppfært:2. febrúar 2026Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er byrjuð að spila tölvuleiki við börn á netinu í forvarnarskyni. Markmiðið með þessu verkefni er að ná til ungmenna sem spila tölvuleiki og eru mikið á netinu. Á næstunni mun lögreglan heimsækja skóla landsins og auglýsa sérstaka tölvuleikjarás á vegum lögreglunar, þar verður kveikt á vefmyndavél hjá lögreglunni og hægt að spila og spjalla beint við lögregluþjóna. Þetta er aðferð til að ná til ungmenna á þeirra vettvangi og vonast lögreglan til þess að hægt verði að sporna við netglæpum og gefa ungmennum greiðan aðgang að lögreglunni og forvörnum með þessum hætti.

    @logreglan Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni. Með því náum við að fræða ungmennin á þeirra vettgangi og veitum eftirlit á þessum vettvangi.#fyp #íslenskttiktok #fyrirþig #logreglan ♬ original sound – Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

    Lögreglan í Danmörku hefur í sama tilgangi verið með sérstaka netvakt allt frá árinu 2022 sem kallast Politiets Online Patrulje. Þar spila lögreglumenn leiki á borð við Counter-Strike, Fortnite og Minecraft og streyma á Twitch til að ná til ungmenna. Hægt er að lesa nánar um verkefnið í Europol skýrslu frá árinu 2025 sem ber heitið „Policing in an Online World. Relevance in the 21st century.“

    Börn og ungmenni nota netið í síauknum mæli, meðal annars til þess að nota samfélagsmiðla og spila tölvuleiki. Í skýrslunni „Börn og netmiðlar“ sem unnin var af Fjölmiðlanefnd í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands kemur meðal annars í ljós að lang flest börn og ungmenna eiga farsíma og mjög stór hluti þeirra spilar tölvuleiki. Einn af vinsælir leikjum hér á landi og víðar er skotleikurinn Fortnite sem lögregluþjónninn sést spila í TikTok-myndbandinu hér fyrir ofan.

    Samsett mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á TikTok og Peter Griffin á Fortnite Wiki.

    Fortnite forvarnir Lögreglan streymi
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaDj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026

    Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War

    2. febrúar 2026

    Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum

    30. janúar 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable

    23. janúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni

    2. febrúar 2026

    Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik

    2. febrúar 2026

    Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War

    2. febrúar 2026

    Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum

    30. janúar 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Lögreglan spilar tölvuleiki við ungmenni í forvarnarskyni
    • Dj flugvél og geimskip gefur út tölvuleik
    • Leikjavarpið #66 – Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War
    • Ólafur Darri leikur Þór í God of War sjónvarpsþáttum
    • Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.