Birt þann 12. nóvember, 2024 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson
Íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress kynnir Walk of Life
Leikurinn er lífhermir sem virðist vera stútfullur af húmor og gerir óspart grín af öllu því súra sem lífið hefur upp á að bjóða.
Porcelain Fortress birti í dag nýja stiklu úr Walk of Life, nýjum tölvuleik sem er væntanlegur fyrri hluta árs 2025. Leikurinn er lífhermir sem virðist vera stútfullur af húmor og gerir óspart grín af öllu því súra sem lífið hefur upp á að bjóða. Allt að fjórir geta spilað leikinn og keppt á móti hvort öðru. Porcelain Fortress gaf út leikinn No Time to Relax árið 2019 sem hefur hlotið góða dóma á Steam og er fullur af húmor líkt og Walk of Life.
Við hvetjum lesendur sem sýna Walk of Life áhuga að bæta leiknum við óskalistann sinn á Steam.