Leikjavarpið

Birt þann 12. júlí, 2022 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Leikjavarpið #42 – Elden Ring, Grow og Ísland í tölvuleikjum

Í þætti fjörutíu og tvö af Leikjavarpinu fjalla þeir Bjarki, Daníel og Sveinn um það heitasta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýjar fréttir tengdar God of War leiknum sem væntanlegur er síðar á þessu ári, Skull and Bones og Forspoken. Í byrjun þáttar er sagt frá nokkrum leikjum sem tengjast Íslandi, þar má meðal annars nefna umhverfið í Death Stranding og Indiana Jones and the Fate of Atlantis frá árinu 1992.

Bjarki gagnrýnir zen-leikinn Grow: Song of the Evertree og Daníel og Sveinn eru með sjóðheitar umræður um Elden Ring þar sem þeir fjalla um sjálfan leikinn og segja frá skoðun sinni á leiknum.

Efni þáttar:

  • Í spilun
  • Ísland í tölvuleikjum
  • Útgáfudagur God of War
  • Skull and Bones kynning og útgáfudagur
  • Forspoken seinkað
  • Ekkert RDR eða GTA 4 Remake
  • Gollum stiklan
  • Grow: Song of the Evertree leikjarýni
  • Eldheitar Elden Ring umræður

Vilt þú að við fjöllum um eitthvað sérsakt í næsta þætti Leikjavarpsins? Sendu okkur línu á Facebook eða á netfangi nordnordursins(hjá)gmail.com.

Mynd (myndblanda): Elden Ring og Grow: Song of the Evertree

Tögg: , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑