Birt þann 5. júní, 2015 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Svona virkar Steam Controller
Valve sendi frá sér kynningarmyndband fyrir Steam Controller fyrir stuttu. Í myndbandinu sjáum við hvernig er hægt að nota þessa nýju tölvuleikjafjarstýringu en hún býður meðal annars upp á nokkuð stóran snertiflöt sem virkar á svipaðan hátt og fjartölvumúsin. Með þessari nýjung vonast margir til að geta spilað fleiri leiki (sérstaklega þá sem krefjast músar) í þægindum sófans og þar með sameinað kosti PC tölvunnar við leikjatölvunnar. Spilarar geta auk þess með auðveldum hætti breytt takkastillingum og þannig aðlagað fjarstýringuna að sínum þörfum.
Verðið á Steam Controller er 50 Bandaríkjadalir, eða um 6.500 íslenskar krónur, og má áætla að gripurinn eigi eftir að kosta í kringum 10.000 kr. þegar búið er að bæta við sendingarkostnaði, tollum og vsk. fyrir okkur Íslendinga.
Fleiri græjur frá Valve eru væntanlegar og má þar nefna Steam Link sem er box sem tengist við sjónvarpið og leyfir spilurum að streyma leikjum úr PC/Steam Machine yfir í sjónvarpið og Steam Machine sem er einskonar samblanda af PC tölvu og leikjatölvu. Hægt er að skoða nokkrar mismunandi gerðir af Steam Machines hér.
-BÞJ / Heimildir: Steam Hardware Pre-Order