Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Bíó og TV»Kvikmyndarýni: The Shining [Svartir sunnudagar]
    Bíó og TV

    Kvikmyndarýni: The Shining [Svartir sunnudagar]

    Höf. Nörd Norðursins5. nóvember 2013Uppfært:5. nóvember 2013Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Svartir sunnudagar sýndu eina vinsælustu hrollvekju allra tíma, The Shining í leikstjórn Stanley Kubricks, síðastliðinn sunnudag í fullum bíósal í Bíó Paradís. 119 mínútna útgáfan var sýnd og  var búið að endurbæta hljóð og mynd verulega fyrir háskerpu-kynslóðina. Sýningin heppnaðist ótrúlega vel og var þetta einstakt tækifæri að sjá myndina á hvíta tjaldinu eftir öll þessi ár. En nóg um sýninguna, dembum okkur í sjálfa myndina!

    The Shining er frá árinu 1980 og byggir á samnefndri bók eftir hrollvekjuhöfundinn Stephen King. Þar er sagt frá þriggja manna fjölskyldu sem flytur í risavaxið hótel yfir vetrartímann. Faðirinn og eiginmaðurinn Jack Torrance (leikinn af Jack Nicholson) hætti nýlega störfum sem kennari og áveður að þiggja starfstilboð sem felur í sér að sjá um og viðhalda hótelinu yfir veturinn, en þá hafa allir starfsmenn yfirgefið hótelið vegna ófærðar, óveðurs og einangrunar sem fylgir vetrarhörkunni á þessum slóðum. Svo heppilega vill til að Jack hefur lengi ætlað að skrifa skáldsögu og er þetta því tilvalið tækifæri fyrir verðandi höfund. Eiginkona Jacks, Wendy Torrance (leikin af Shelley Duvall) og sonur hans Danny (leikinn af Danny Lloyd), fylgja honum og búa þau þrjú saman á þessu risastóra hóteli sem á sér blóðuga forsögu. Danny býr yfir yfirnáttúrulegum hæfileika sem kallast The Shining og sér truflandi sýnir sem virðast tengjast hótelinu og fortíð þess. En er eitthvað að óttast?

    The Shining

    Það er ekki að ástæðulausu að The Shining er í 49. sæti á topplista IMDb. Myndin nær að tvinna saman marga einstaklega vel heppnaða hluti í eina stórkostlega heild. Myndin er fyrst og fremst sálfræðihrollvekja sem nær gífurlega góðum tökum á áhorfanda frá upphafi til enda. Tónlistin spilar stóran þátt í að mynda drungalega stemningu með skrækju fiðluspili og höggvandi hjartslætti í bakgrunni. Mörg atriði eru í raun afskaplega róleg og yfirveguð, en klippingin, myndatakan og tónlistin ná í sameiningu að mynda ógnvekjandi og taugastrekkjandi stemningu. Myndramminn er vel nýttur og mörg skot sem eru afskaplega fallega uppsett. Löng skot og myndræn framsetning eru hluti af sérkennum og kostum myndarinnar. Að lokinni mynd verður hótelið, og herbergi 237, að ógleymanlegum stað.

    The Shining

    Burt séð frá tæknilegum atriðum og framsetningu, þá er The Shining löngu orðin að klassískri kvikmyndaperlu. Í henni er að finna heldur fáar tæknibrellur og hefur myndin því staðist tímans tönn og í raun ótrúlegt að sjá hversu vel myndin hefur elst á þessum 33 árum. Lítið er um ýkt, ógeðfelld og blóðug atriði (sérstaklega miðað við flestar hrollvekjur í dag) en myndin er aftur á móti full af taugastrekkjandi atriðum sem heldur manni allan tímann við efnið. Svo má ekki gleyma leikurum myndarinnar en það er hann Jack Nicholson sem fer algjörlega á kostum og er hlutverk hans í The Shining klárlega eitt af eftirminnilegustu hlutverkum leikarans.

    Ef þú hefur ekki séð The Shining skaltu sjá hana, og ef þú hefur séð The Shining muntu að öllum líkindum horfa á hana aftur! The Shining er einfaldlega ein af betri sálfræðihrollvekjum kvikmyndasögunnar og einstaklega eftirminnileg. Skylduáhorf!

    Næsta sunnudag ætla Svartir sunnudagar að sýna Logan’s Run (1976). Sjáumst í Bíó Paradís!

     

    Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
    ritstjóri Nörd Norðursins.

     

    1980s Bíó Paradís Bjarki Þór Jónsson Jack Nicholson kvikmyndarýni Stanley Kubrick stephen king svartir sunnudagar The Shining
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaDrakúla greifi á íslensku
    Næsta færsla Spilarar EVE Online á Íslandi hittast í höfuðstöðvum CCP
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Secret Level

    10. desember 2024

    RIFF kvikmyndahátíðin 2024

    27. september 2024

    Hvað ef Squid Game leikirnir væru íslenskir?

    13. nóvember 2021

    Austin Powers heimsækir Mass Effect

    19. október 2021

    Leikjavarpið #26 – Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran

    13. ágúst 2021

    Ring Fit áskorun í febrúar!

    4. febrúar 2021
    Nýtt á Nörd Norðursins

    VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag

    5. desember 2025

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • VR Worlds – Nýr sýndarveruleikasalur opnar í gamla Gzero í dag
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.