Fréttir

Birt þann 28. apríl, 2025 | Höfundur: Sveinn A. Gunnarsson

Clair Obscur: Expedition 33 fer vel af stað

Clair Obscur: Expedition 33 frá Sandfall Interactive og útgefandanum Kepler Interactive hefur náð miklum árangri síðan hann kom út þann 24. apríl síðastliðinn, með yfir 1 milljón seldum eintökum á PC, PlayStation 5 og Xbox Series X/S.

Leikurinn er einnig aðgengilegur í áskriftarþjónustunni Game Pass á PC og Xbox Series X/S, en sá spilunarfjöldi telst ekki með í opinberum sölutölum.


Leikurinn skartar þekktum raddleikurum á borð við:

  • Andy Serkis (Renoir)
  • Ben Starr (Verso)
  • Charlie Cox (Gustave)
  • Jennifer English (Maelle)
  • Kirsty Rider (Lune)
  • Shala Nyx (Sciel)

Sandfall Interactive er nýstofnað leikjastúdíó skipað um 30 manns, þar á meðal mörgum fyrrverandi starfsmönnum frá Ubisoft.Samkvæmt stofnanda og yfirmanni fyrirtækisins, Guillaume Broche, var ein helsta hvatningin að þróa Clair Obscur sú tilfinning að það skorti stóra, metnaðarfulla lotubundna (turn-based) RPG-leiki í AAA leikjaiðnaðinum.


Clair Obscur: Expedition 33 sækir mikinn innblástur frá japönskum leikjaseríum á borð við Final Fantasy og Persona.
Broche nefnir einnig áhrif frá leikjum eins og Lost Odyssey og Blue Dragon, sérstaklega hvað varðar notkun skyndiatburða (Quick Time Events) sem auka spennu í bardögum.

Leikirnir voru á sínum tíma hluti af herferð Microsoft til að laða japönsk leikjafyrirtæki að Xbox 360-vélinni með því að hanna leiki fyrir vestrænan markað.


Clair Obscur: Expedition 33 gerist í myrku fantasíuútgáfu af Belle Époque tímabilinu.Íbúar einangruðu eyjarinnar Lumière hafa í 67 ár þurft að lifa við ógnina af atburði sem kallast Gommage — þar sem gyðjan Listakonan (Tracy Wiles) málar sífellt lægra tölugildi og allir sem eru eldri en það hverfa.

Á hverju ári eftir Gommage sendir Lumière sjálfboðaliða í könnunarleiðangur til meginlandsins, í von um að uppræta Listakonuna áður en hún getur valdið nýjum hörmungum og Expedition 33 er nýjasti leiðangurinn sem leggur af stað.

Hérna fyrir neðan er hægt að hlusta á tónlistina úr leiknum sem er virkilega falleg að mínu mati.


Leikurinn hefur fengið frábæra dóma frá gagnrýnendum og er með einkunnina 92/100 á Metacritic og 91/100 á OpenCritic. Þannig að Clair Obscur: Expedition 33 er þegar orðinn einn af hæst metnu leikjum ársins hingað til.

Ef þið hafið áhuga að kíkja á þennan forvitnilega leik þá er hann kominn út fyrir PC, PlayStation 5 og Xbox Series og er aðgengilegur  í Game Pass þjónustu Microsoft og Xbox ef þið eruð með áskrift þar.

Heimild: IGN

Deila efni

Tögg: , , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑