Fréttir

Birt þann 25. júlí, 2019 | Höfundur: Sveinn A. Gunnarsson

Wolfenstein: Youngblood fær útgáfustiklu

Wolfenstein: Youngblood færir hasarinn til nútímans, eða reyndar til lok áttunda áratugsins í nýjum co-op leik sem kemur út í þessari viku.

Sagan gerist 19 árum eftir atburði Wolfenstein II: The New Colossus. B.J. Blazkowicz hefur horfið eftir að hafa tekið að sér verkefni í Parísarborg sem er undirlögð Nasistum. Eftir áralanga þjálfun föður síns þá munu tvíburadætur B.J., Jess og Soph Blazkowicz halda til Evrópu til að finna föður sinn.

Hægt er að spila einn eða með vini í gegnum leikinn, uppfæra karakter þinn, opna fyrir nýja hæfileika, vopn og tól ásamt hlutum til að breyta útliti persónu þinnar.

Leikurinn er hannaður í samvinnu af sænska fyrirtækinu MachineGames sem hefur gert alla Wolfenstein leikina frá árinu 2014 og franska fyrirtækinu Arkane Studios sem eru þekkstastir fyrir Dishonored og Prey (2017) leikina

Ef fólk kaupir Deluxe útgáfu leiksins þá fylgir með buddy passsem leyfir þér að bjóða vini þínum að spila leikinn saman í gegnum netið án þess að hann eða hún eigi leikinn. 

Ekki slæmur díll þarna, það hjálpar einnig að leikurinn er á lægra verði, um £25-34,99 sem er um 4-5.500 kr. Þá á þó eftir að koma í ljós hvernig verðið verður hér á landi.

Wolfenstein: Cyberpilot kemur einnig út í þessari viku. Um er að ræða sýndarveruleikaleik fyrir HTC Vive, Windows Mixed Reality og Valve Index þar sem fólk getur hakka sig inn í kraftmiklar stríðsvélar Nasistanna í París og ganga frá þeim með þeirra eigin vopnum.

Deila efni

Tögg: , , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑