Bíó og TV

Birt þann 7. september, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Þrír leikstjórar heiðraðir á RIFF

RIFF – Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík – fagnar tíu ára afmæli sínu m.a. með því að veita þremur leikstjórum verðlaun fyrir framúrskarandi listfengi. Leikstjórarnir koma frá Skandinavíu, Evrópu og Bandaríkjunum, eru á svipuðum aldri og eiga það sameiginlegt að hafa skýra listræna sýn.

Þetta eru Svíinn Lukas Moodysson, Frakkinn Laurent Cantet og Bandaríkjamaðurinn James Gray. Allir koma þeir til landsins með eina glænýja mynd í farteskinu og tvær eldri. Þeir munu sitja fyrir svörum á sýningum mynda sinna og halda svokallaða „masterclass“ þar sem þeir munu miðla af viskubrunni sínum fyrir gesti.

RIFF hefst 26. september og stendur til 6. október

– Fréttatilkynning frá RIFF
Deila efni

Tögg:


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑